Áhrif starfsumhverfis á veikindafjarvistir hjá Reykjavíkurborg

Authors: Harpa Hrund Berndsen
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð eru tengsl starfsumhverfis og veikindafjarvista innan starfsstaða Reykjavíkurborgar skoðuð. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að greina hvort tengsl væru á milli starfsumhverfis og veikindafjarvista og hins vegar að meta hvaða þættir í starfsumhverfinu hefðu áhrif á veikindafjarvistir. Byggt var á gögnum úr starfsumhverfiskönnuninni Stofnun ársins og skráðum veikindafjarvistum starfsstaða Reykjavíkurborgar fyrir árin 2023 og 2024. Sett var fram lýsandi tölfræði og til að meta tengsl starfsumhverfis og veikindafjarvista voru framkvæmdar fylgni- og aðhvarfsgreiningar. Að auki voru framkvæmdar aðhvarfsgreiningar þar sem stýrt var fyrir þjónustuþáttum, það er eðli starfseminnar á starfsstöðum Reykjavíkurborgar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að gott starfsumhverfi tengist almennt minni veikindum. Sérstaklega reyndist þátturinn ánægja og stolt vera sterkur forspárþáttur minni veikinda á meðan streita tengdist auknum veikindum. Þessar niðurstöður eru í samræmi við kenningar og fyrri rannsóknir á efninu. Tengsl annarra þátta, svo sem stjórnunar, sveigjanleika og sjálfstæðis í starfi reyndust flóknari og háð þjónustuþáttum. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga vísbendingu um að markvissar aðgerðir til að bæta starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr streitu geti dregið úr veikindafjarvistum starfsfólks Reykjavíkurborgar.

Fields of Study & Subjects

Crime Patterns and Interventions Social Work Education and Practice Workplace Violence and Bullying

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis