Rannsókn á áhrifum rammaáhrifa og félagslegra viðmiða á skoðanir almennings

Authors: Agnar Daði Einarsson 2003-
Cited by: 0

Abstract

Rannsóknir á sviði atferlishagfræði hafa sýnt fram á að bæði rammaáhrif og félagsleg viðmið geta haft áhrif á skoðanir og hegðun einstaklinga. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort mismunandi römmun á upplýsingum um félagsleg viðmið hefði áhrif á viðhorf almennings til kjarabaráttu og verkfalla kennara í lok árs 2024 og byrjun árs 2025. Tilraunarannsókn var framkvæmd þar sem 218 þátttakendum var slembiraðað í þrjá hópa; stuðningshóp sem hlaut íhlutun sem lagði áherslu á hversu margir studdu við kjarabaráttu og verkföll kennara, andstöðuhóp sem hlaut íhlutun sem lagði áherslu á hversu margir studdu lítið eða ekkert við kjarabaráttu og verkföll kennara og svo viðmiðunarhóp sem hlaut enga íhlutun. Þátttakendur svöruðu svo spurningum í kjölfarið um viðhorf til kjarabaráttu, verkfalla og launakrafna kennara. Niðurstöður sýndu engin marktæk heildaráhrif íhlutunanna. Hins vegar voru öll átta íhlutunaráhrifin jákvæð sem bendir til kerfisbundinnar stefnu frekar en tilviljunar. Sérstaklega athyglisvert var að andstöðuíhlutunin, sem átti að draga úr stuðningi, sýndi jákvæða stefnu í átt að auknum stuðningi eða svokölluð andhverfuáhrif. Undirhópagreining leiddi í ljós marktæk meðferðaráhrif hjá hægri sinnuðum, körlum, yngra fólki og þeim sem höfðu engin persónuleg tengsl við kennara. Rannsóknin þjáðist af litlum tölfræðilegum krafti vegna úrtaksstærðar. Þrátt fyrir þessar takmarkanir benda niðurstöðurnar til þess að römmun félagslegra viðmiða kunni að hafa áhrif á viðhorf til vinnumarkaðsmála, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafa sterkar fyrir fram mótaðar skoðanir. Niðurstöðurnar undirstrika einnig mikilvægi þess að íhuga vel hvernig upplýsingar um félagsleg viðmið eru settar fram þar sem áhersla á rangan hlut getur valdið óvænlegri útkomu.

Fields of Study & Subjects

Sexual Assault and Victimization Studies Social and Intergroup Psychology Obesity and Health Practices

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis