Neysluhættir sem tjáning: Viðhorf og merking neyslu meðal ungs fólks

Authors: Eva Björk Schram 2001-
Cited by: 0

Abstract

Neysluhegðun fólks mótast af áhrifum fjölmargra ólíkra þátta. Má þar sem dæmi nefna vini, fjölskyldu, umhverfisþætti og aðra utanaðkomandi hópa. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig ungt fólk túlkar upplifun sína á neyslu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við fimm einstaklinga á aldrinum 20-26 ára. Viðtölin voru svo þemagreind þar sem fimm meginþemu og tvö undirþemu voru áberandi í svörum viðmælenda. Þau þemu sem komu ítrekað fram í viðtölunum voru sterk áhrif annarra, sterk áhrif frá samfélagsmiðlum, umhverfisvitund og sjálfbærni, aukin meðvitund um notagildi og þroski og breytingar með tímanum. Helstu niðurstöður sýndu fram á að ungt fólk upplifir áhrif frá öðrum og samfélagsmiðlum í neysluhegðun sinni þó að það reyni að einhverju leyti að standa gegn þessum þrýstingi og áhrifum. Einnig sýndu niðurstöður fram á að þroski, aukin meðvitund um umhverfismál og breytingar á lifnaðarháttum höfðu áhrif og mótuðu neysluhegðun viðmælendanna.

Fields of Study & Subjects

Bullying Victimization and Aggression Psychology and Mental Health Youth Culture and Social Dynamics

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis