Arðsemi menntunar: Fjárhagslegur ávinningur af háskólanámi

Authors: Sólberg Vikar Einarsson 1999-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um arðsemi menntunar á Íslandi með áherslu á fjárhagslegan ávinning af því að afla sér háskólamenntun. Markmið ritgerðarinnar er að kanna hvort háskólamenntun skili sér í hærri launum og auknu atvinnuöryggi, auk þess sem sérstök áhersla er lögð á að greina hvort munur sé á arðsemi menntunar milli karla og kvenna. Rannsóknin byggir á hagfræðilegum kenningum um mannauð, þar sem menntun er skilgreind sem fjárfesting sem skilar ábata til framtíðar og kenningu um merkjagjöf þar sem að menntun er notað sem skimunartæki til þess að aðgreina hæfileikaríka einstaklinga á vinnumarkaði frá þeim sem eru ekki eins hæfileikaríkir. Greiningin byggir einkum á gögnum frá Hagstofu Íslands um laun, atvinnuþátttöku, starfssvið og menntunarstig einstaklinga á Íslandi. Fjárhagslegur ávinningur menntunar er metinn meðal annars með útreikningi innri vaxta, þar sem tekið er tillit til bæði beins og óbeins kostnaðar við háskólanám. Jafnframt er skoðað samband menntunar og atvinnuöryggis, til að meta hvort háskólamenntun tengist stöðugri þátttöku á vinnumarkaði. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að háskólamenntun hafi jákvæð áhrif á bæði laun og atvinnuöryggi einstaklinga á Íslandi. Hins vegar kemur fram að launaaukning vegna háskólamenntunar hafi farið lækkandi á síðastliðnum árum. Arðsemi menntunar meðal þeirra sem starfa við sérfræðistörf reyndist að jafnaði 10,2% samkvæmt útreikningi innri vaxta þar sem að viðmiðunarhópur voru ósérhæfðir. Þessi niðurstaða tekur mið af heildarlaunum fyrir skatt. Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir kyni kemur í ljós að arðsemi menntunar er svipuð hjá körlum og konum, þar sem karlar mælast með 11,5% arðsemi og konur með 11,4%. Þessar niðurstöður benda til þess að háskólamenntun sé áfram arðbær fjárfesting fyrir einstaklinga, þrátt fyrir minnkandi launaaukningu, og að kynjamunur í arðsemi menntunar sé lítill samkvæmt þessari greiningu.

Fields of Study & Subjects

Labor market dynamics and wage inequality Education and Labor Relations Higher Education and Employability

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 February 2026
Language
IS
Document type
Thesis