Kostnaður hreyfingarleysis á Íslandi: Sjúkrahússkostnaður og framleiðslutap fyrir valda sjúkdóma

Authors: Gunnar Sigurðsson 1997-
Cited by: 0

Abstract

Hreyfingarleysi er eitt brýnasta lýðheilsumál samtímans og tengist fjölmörgum langvinnum sjúkdómum sem valda bæði heilsufarslegri og fjárhagslegri byrði. Ófullnægjandi hreyfing eykur m.a. líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki af tegund 2, brjóstakrabbameini og geðrænum vandamálum og eru þessir sjúkdómar til rannsóknar í ritgerð þessari. Þeir leiða til verulegs kostnaðar fyrir heilbrigðiskerfið og samfélagið í formi aukinna útgjalda og framleiðslutaps. Í ritgerðinni er lagt mat á rekjanlegan kostnað hreyfingarleysis á Íslandi árið 2024 með sjúkdómskostnaðargreiningu. Metinn er bæði beinn kostnaður vegna sjúkrahússþjónustu og óbeinn kostnaður vegna tapaðrar framleiðni. Rekjanlegur kostnaður var áætlaður út frá líkum á tengslum sjúkdómanna við hreyfingarleysi og þeim kostnaði sem þeir valda. Greiningin byggist á gögnum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri fyrir fyrrnefnda sjúkdóma sem kunna að hafa þekkt tengsl við hreyfingarleysi með hliðsjón af áhættuhlutföllum úr fyrri erlendum rannsóknum. Heildarkostnaður sjúkdómanna nam 23,03 milljörðum ISK árið 2024. Beinn sjúkrahússkostnaður nam 18,49 milljörðum ISK og er hluti kostnaðarins sem rekja má til hreyfingarleysis reiknaður 1,474 milljarður ISK. Óbeinn kostnaður vegna framleiðslutaps reiknast 4,54 milljarðar ISK. Þar af eru 368 milljónir ISK rekjanlegar til hreyfingarleysis. Stærsti hluti kostnaðarins er tilkominn vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Heildarmatið undirstrikar mikilvægi þess að draga úr hreyfingarleysi í íslensku samfélagi og minnka þar með fjárhagslega byrði auk þess að bæta heilsufar þjóðarinnar.

Fields of Study & Subjects

Physical Activity and Health Musculoskeletal pain and rehabilitation Health Systems Economic Evaluations Quality of Life

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis