Rekstur íslenskra golfklúbba. Hvernig ólík rekstrarlíkön hafa áhrif á félagsaðild, viðhaldsþarfir og fjárhagslega stöðu íslenskra golfklúbba

Authors: Andri Þór Hafþórsson 2000-
Cited by: 0

Abstract

Ritgerð þessi fjallar um rekstur íslenskra golfklúbba og hvernig ólík rekstrarlíkön hafa áhrif á félagsaðild, viðhaldsþarfir og fjárhagslega stöðu klúbbanna. Markmið rannsóknarinnar er að greina helstu einkenni rekstrarlíkana íslenskra golfklúbba og varpa ljósi á hvernig samspil tekjumódela, opinbers stuðnings og rekstrarumhverfis mótar starfsemi þeirra. Rannsóknin byggir á heimildarannsókn þar sem greindir voru ársreikningar íslenskra golfklúbba, opinber gögn, fræðilegar heimildir og alþjóðlegar fyrirmyndir. Business Model Canvas var notað sem greiningartæki til að bera saman ólík rekstrarlíkön og draga fram helstu styrkleika, veikleika og áhættuþætti. Niðurstöður sýna að rekstur íslenskra golfklúbba er hægt að flokka í þrjú meginsnið: sjálfseignar- og félagakerfi, sveitarfélagastyrktan rekstur og blandað rekstrarlíkan. Flestir klúbbar starfa í reynd samkvæmt blönduðu líkani þar sem félagsgjöld mynda kjarnatekjustoð en opinber stuðningur léttir hluta kostnaðar, einkum vegna innviða og viðhalds. Stærð klúbbs og staðsetning reyndust hafa afgerandi áhrif á tekjugrunn, fjárfestingargetu og rekstraráhættu. Ritgerðin dregur þá ályktun að rekstrarlíkön íslenskra golfklúbba séu ekki einsleit heldur mótist af aðstæðum hvers klúbbs. Hún undirstrikar mikilvægi þess að greina rekstur golfklúbba í samhengi við samfélagslegt hlutverk, opinbera stefnu og raunverulegar fjárhagslegar forsendur.

Fields of Study & Subjects

Physical Education and Sports Studies Management and Organizational Studies Business Strategies and Innovation

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis