Er grundvöllur fyrir frjálsri verðmyndun á íslenska raforkumarkaðnum?

Authors: Sindri Heiðar Einarsson 2000-
Cited by: 0

Abstract

Ritgerð þessi metur hvort grundvöllur sé fyrir frjálsri verðmyndun á íslenska raforkumarkaðnum, með áherslu á hvort verð geti myndast á opnum og gagnsæjum vettvangi óháð stöðu ráðandi aðila. Greiningin byggir á fræðilegum ramma um frjálsa verðmyndun, markaðsvald og SCP-líkanið (Structure–Conduct–Performance) og er studd gögnum um samþjöppun, samningsform og markaðsvirkni. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir formlegt regluverk um samkeppni í vinnslu og sölu raforku er framleiðslumarkaðurinn mjög samþjappaður. Landsvirkjun framleiðir um 73% raforkunnar og HHI stuðullinn er hár eða um 5.670. Jafnframt fer megnið af heildsöluviðskiptum fram í tvíhliða langtímasamningum utan opinberra markaða, sem dregur úr gagnsæi og veikir verðmerki. Tilkoma viðskiptavettvanga á borð við Elmu og Vonarskarð hefur aukið upplýsingar um verð, en viðskiptamagn er enn lítið og markaðsverð á þessum mörkuðum gegnir að mestu jaðarhlutverki. Heildarniðurstaðan er því að forsendur frjálsrar verðmyndunar eru aðeins að hluta til til staðar.

Fields of Study & Subjects

Merger and Competition Analysis Diverse Legal and Medical Studies Legal and Constitutional Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis