Stafrænar leiðir til að breyta heiminum: #MeToo og #BlackLivesMatter
Abstract
Þetta er heimildaritgerð þar sem stafrænn aktívismi er skilgreindur frá félagsfræðilegu sjónarhorni. Jafnframt er því lýst hvernig hann fer fram og birtist á samfélagsmiðlum. Farið er yfir sögu #MeToo á Íslandi og í Bandaríkjunum og íslenski angi hreyfingarinnar greindur út frá kenningu Bourdieu um félagslegt auðmagn og kenningu Melucci um sameiginlega sjálfsmynd. Einnig er farið yfir sögu #BlackLivesMatter í Bandaríkjunum og hreyfingin tengd við hugmyndir félagsfræðinga um nýtt eftirlit. Helstu niðurstöður benda til þess að báðar hreyfingar hafi haft mælanleg áhrif. Í kjölfar #MeToo jukust tilkynningar um kynferðisofbeldi um 11% í Bandaríkjunum og afneitun á reynslu þolenda af kynferðisofbeldi minnkaði. Rannsóknir á Black Lives Matter benda til þess að hreyfingin hafi leitt til aukinnar athygli á andrasískri hugmyndafræði og að hreyfingin hafi haft áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2020. Einnig fækkaði morðum af hendi lögreglu í kjölfar BLM mótmæla og notkun lögreglu á líkamsmyndavélum jókst. Stafrænn aktívismi gefur því aktívistum tækifæri til þess að hafa áhrif á samfélagið í gegnum samfélagsmiðla.
Fields of Study & Subjects
Social Media and Politics
Gender
Feminism
and Media
Social Movements and Cultural Identity
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis