Mismunandi birting femínisma: Samtvinnun og fjölbreytni femínisma í ólíkum menningarheimum
Abstract
Saga femínisma hefur oft verið skýrð í gegnum fjórar bylgjur eða tímaskeið sem hafa mótað baráttu kvenna síðustu tvö hundruð árin. Fyrsta bylgjan á 19. öld fólst í kröfum um lagaleg réttindi og var leidd af hvítum miðstéttarkonum í Evrópu og Bandaríkjunum. Önnur bylgjan á sjöunda og áttunda áratugnum beindist að félagslegu og menningarlegu jafnrétti og beindi sjónum að málefnum eins og kynbundnu ofbeldi og réttindum til líkama kvenna. Þriðja bylgjan um 1990 lagði áherslu á fjölbreytileikann, kynjahlutverk og jákvæða líkamsímynd auk þess að vera gagnrýni á fyrri bylgjur sem höfðu einkum tekið mið af reynslu hvítra kvenna. Á þessum tíma varð hugtakið samtvinnun (e. intersectionality) til í tengslum við femínisma og var það Kimberlé Crenshaw sem þróaði það, bendir þetta hugtak á mikilvægi þess að skoða mismunandi stöðu og reynslu jaðarsettra hópa. Fjórða og nýjasta bylgjan einkennist af stafrænum aktívisma (aðgerðasinnastefnu) og hreyfingar samfélagsmiðla á borð við #MeToo. Þó svo að þessar bylgjur hafi haft mikil áhrif þá endurspegla þær aðeins vestrænar hugmyndir af femínisma og geta því verið einsleitar. Til þess að skilja betur fjölbreytileikann í femínískri baráttu um heiminn er nauðsynlegt að skoða hugtök eins og samtvinnun, hnattrænan femínisma og staðbundinn femínisma, sem geta varpað betur ljósi á það hvernig ólík samfélög og menningarheimar móta femíníska baráttu og áherslur hennar hverju sinni og er það einmitt meginefni þessarar ritgerðar.
Fields of Study & Subjects
Feminist Theory and Gender Studies
Gender and Feminist Studies
Historical Gender and Feminism Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis