„Þetta skiptir bara öllu máli og er alveg samofið í starfið“: Hlutverk náms- og starfsráðgjafa í eflingu félags- og tilfinningahæfni nemenda í grunnskólum

Authors: Hildur Halldórsdóttir 1989-
Cited by: 0

Abstract

Góð félags- og tilfinningahæfni hefur margvísleg jákvæð áhrif á þroska barna og ungmenna til skemmri og lengri tíma. Félags- og tilfinninganám er gagnreynd nálgun til að kenna, móta og styrkja hæfnina og draga um leið úr fjölmörgum neikvæðum áhættuþáttum í þeirra lífi. Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu og hlutverk náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum af eflingu félags- og tilfinningahæfni nemenda sinna og hvaða merkingu þeir leggja í það hlutverk sitt. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við átta náms- og starfsráðgjafa sem starfa í íslenskum grunnskólum, bæði af höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Helstu niðurstöður leiða í ljós að meginþættir félags- og tilfinningahæfni endurspeglist í innihaldi og markmiðum ráðgjafar í grunnskólum þar sem góð hæfni skapi skilyrði fyrir gott námsgengi, heilbrigðari sjálfsmynd og upplýstara val um framtíð nemenda. Niðurstöðurnar fanga þá sameiginlegu reynslu og sýn viðmælenda að félags- og tilfinningahæfni sé kjarni ráðgjafarinnar og tengist inn í flest önnur verkefni þeirra í grunnskólanum. Þær varpa einnig ljósi á tvíþætt eðli verkefnisins sem bæði er unnið í forvarnarskyni og sem viðbragð við aukinni þörf á stuðningi og ráðgjöf. Þá megi ekki vanmeta mikilvægi tengslamyndunar og þess persónulega sem skapi traust og rými til þess að vinna með viðkvæm málefni sem tengst geta tilfinningum og samskiptum. Viðmælendur líta á þetta sem eitt helsta og mikilvægasta hlutverk sitt í starfinu. Þessar niðurstöður benda til þess að náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum gegni í reynd lykilhlutverki í félags- og tilfinninganámi nemenda í grunnskólum og að ábyrgð á því hafi að einhverju leyti færst óformlega yfir á þá þó skýran ramma um það hlutverk skorti.

Fields of Study & Subjects

School Health and Nursing Education Social Work Education and Practice Educational Practices and Policies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis