„En þú lítur ekki út fyrir að vera það“: Upplifun seinhverfra kvenna og kvára af kynjuðum staðalímyndum um einhverft fólk

Authors: Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir 1981-
Cited by: 0

Abstract

Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er upplifun seinhverfra kvenna og kvára af kynjuðum staðalímyndum um einhverft fólk. Rannsóknin á bak við ritgerðina var unnin út frá femínískri nálgun og gagnrýnum hugmyndum um taugafjölbreytileika, með áherslu á samtvinnun félagslegra áhrifaþátta. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun seinhverfra kvenna og kvára af margþættri mismunun og setja þá upplifun í samhengi við ráðandi hugmyndir og staðalímyndir um einhverft fólk. Rannsóknin var eigindleg, tekin voru 14 hálfstöðluð viðtöl og þemagreining var notuð til að vinna úr gögnunum. Niðurstöður benda til þess að staðalímyndir í vinsælum miðlum, þá aðallega í bíómyndum og sjónvarpsefni, móti hugmyndir seinhverfra kvenna og kvára — og fólks í umhverfi þeirra — bæði fyrir og eftir að þau fá einhverfustaðfestingu, og haldi þeim jafnvel frá því að uppgötva einhverfuna sína fyrr. Staðalímyndirnar sem nefndar voru í viðtölunum voru oftast hvítir karlar, sýndir annað hvort með miklar hömlur eða ofurgáfur, og þessir eiginleikar ýktir út frá túlkunum óeinhverfra. Viðmælendur töldu slíkar staðalímyndir byggja meðal annars á karllægum, læknisfræðilegum undirstöðum einhverfu og á hugmyndum um arfbætur, og áttu þau yfirleitt erfitt með að tengja við og spegla sig í þeim. Þar sem viðmælendur pössuðu aldrei inn í ráðandi hugmyndir og staðalímyndir um einhverfu, upplifðu þau sig öðruvísi og utangarðs áður en þau vissu af einhverfu sinni og lærðu því að fela eða maska eiginleika hennar snemma. Karllægar staðalímyndir héldu áfram að móta líf viðmælenda eftir að þau fengu einhverfustaðfestingu, í formi fordóma, mismununar, mótlætis og þekkingarlegs ranglætis. Viðmælendum var yfirleitt ekki trúað að þau gætu verið einhverf, en voru á sama tíma hvött til að halda áfram að maska eiginleika einhverfu sinnar. Þau töldu möskun yfirleitt hafa slæmar afleiðingar á velferð sína og lífsgæði.

Fields of Study & Subjects

Gender and Feminist Studies LGBTQ Health Identity and Policy Gender Sexuality and Education

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis