Contemporary Cults: Charismatic Authority and the Power of Words in Shaping Young Men´s Identity on Social Media
Abstract
Ritgerð þessi fjallar um hvernig orðræða, vald og sjálfsmynd fléttast saman í stafrænu rými, með áherslu á áhrifamátt orða og náðarvalds í mótun viðhorfa og sjálfsmyndar ungra karla. Byggt er á kenningum um bæði kyngervi og orð sem gjörning, ráðandi karlmennsku og náðarvald, ásamt rannsóknum á sértrúarsöfnuðum, áhrifum stafrænna miðla og sjálfsmyndarsköpun. Umfjöllun ritgerðarinnar er studd með alþjóðlegum og íslenskum dæmum sem sýna hvernig hlaðin orðræða, endurtekning og tilfinningaleg skírskotun umbreyta lauslegum áhuga í fylgispekt og gera karlmennsku að stöðugu verkefni sem þarf að framkvæma og staðfesta. Ritgerðin bendir á að aðdráttarafl slíkra orðræðu megi skilja í sambandi við upplifaða óvissu og breyttar samfélagslegar aðstæður, fremur en sem afleiðing einstaklingsbundinna veikleika. Með þessari nálgun leitast ritgerðin við að dýpka skilning á því hvernig vald orðsins í stafrænu rými mótar sjálfsmynd og ýtir undir löngun til að tilheyra. Að lokum leggur ritgerðin grunn að gagnrýnni og umburðarlyndari umræðu um orð, vald og karlmennsku í samtímanum.
Fields of Study & Subjects
Gender
Feminism
and Media
Media
Religion
Digital Communication
Gender Roles and Identity Studies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis