Börn, fjölmiðlar og félagsmótun: Eigindleg greining á barnaefni

Authors: Bryndís Embla Bjarnadóttir 1993-
Cited by: 0

Abstract

Bakgrunnur: Bækur hafa lengi spilað stórt hlutverk í lífum barna sem kennsluefni og sem afþreyingarefni. Fyrsta barnabókin, Hinn sýnilegi heimur, er talin hafa komið út árið 1658. Síðustu áratugi hefur mynd-og stafrænt efni bæst við og stundum á kostnað annarrar samfélagslegrar virkni. Ýmsir fræðimenn hafa beint sjónum að áhrifum samfélags á mótun persónulegra gilda og viðmiða og er þar barnaefni ekki undanskilið. Markmið: Helsta markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða áhrif fjölmiðlar hafa á félagsmótun barna og hvort og hvaða breytingar megi greina yfir tíma í miðlun gilda og viðmiða barna í gegnum fjölmiðlaefni. Aðferð: Valin rannsóknaraðferð er eigindleg efnisgreining. Niðurstöður greiningarinnar voru skoðaðar út frá kenningum Berger og Luckmann um félagslega uppbyggingu veruleikans, valdakenningum Foucault og hugtaksins veruhátts. Niðurstöður: Helstu niðurstöður leiddu í ljós að fjölmiðlaefni sem beinist að börnum getur gengt mikilvægu hlutverki í frumfélagsmótun og annars stigs félagsmótun barna. Ekki er annað að sjá en að samfélagsleg viðmið og gildi endurspeglist í efni sem ætlar er börnum og taki breytingum í takt við tíðaranda hvers tíma. Ályktun: Þar sem áhrif fjölmiðla virðast töluverð mikil á félagsmótun barna mætti draga þá ályktun að vanda þurfi val á efni fyrir börn og gæta að efnisval styðji við jákvæða félagsmótun barna.

Fields of Study & Subjects

Child Development and Digital Technology Themes in Literature Analysis Crime Deviance and Social Control

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis