Hver á Grindvíkinginn? Húsnæðisvandi í kjölfar náttúruvár - hver ber ábyrgðina?

Authors: Ellen Jacqueline Calmon 1973-
Cited by: 0

Abstract

Þetta meistaraverkefni fjallar um húsnæðismál Grindvíkinga í kjölfar rýmingar Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa 10. nóvember 2023. Meginrannsóknarspurningin snýr að því hver beri ábyrgð á að tryggja íbúum húsnæði í kjölfar slíks atburðar. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig stjórnvöld, bæði sveitarfélag og ríki, í samstarfi við aðrar opinberar stofnanir og viðbragðsaðila, brugðust við þessum fordæmalausu aðstæðum og hvernig ábyrgð, samhæfing og stefnumótun birtist í framkvæmd. Rannsóknin byggir á fræðilegum kenningum um krísustjórnun, valddreifingu og umboðskenningu. Nálganir Ryan og Woods (2017) eru nýttar til að greina dreifingu valds og ábyrgðar milli stjórnstiga, á meðan Christensen o.fl. (2016) leggja áherslu á getu stjórnkerfa til að takast á við krísur og viðhalda lögmæti. Umboðskenningin er notuð til að skýra verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélags. Aðferðafræðin byggir á skrifborðsrannsókn og skjalarýni opinberra gagna, þar á meðal fundargerða Grindavíkurbæjar og annarra opinberra skýrslna. Niðurstöður sýna að ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélags hefur verið óljós, með skörun ábyrgðar og áskorunum í samhæfingu. Rannsóknin undirstrikar að húsnæði er lykilforsenda félagslegs stöðugleika og að skýrari, samhæfð stefnumótun er nauðsynleg til að tryggja húsnæðisöryggi í krísu. Niðurstöðurnar varpa ljósi á mikilvægi skýrra stjórnskipulegra ramma og sameiginlegrar stefnumótunar í húsnæðismálum eftir náttúruhamfarir til framtíðar fyrir samfélagslegt öryggi íbúa landsins alls.

Fields of Study & Subjects

Disaster Management and Resilience Earthquake and Disaster Impact Studies Public Policy and Administration Research

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis