Áhættur og óvissa í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja: Hverjir eru helstu óvissu- og áhættuþættir í virðiskeðju íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja?

Authors: Björgvin Viðar Þórðarson 2001-
Cited by: 0

Abstract

Sjávarútvegur er hefur verið ein mikilvægasta atvinnugrein Íslands, mótað sögu landsins og íslensks efnahagslífs í áraraðir. Fiskveiðar í sjó eru flóknar í framkvæmd og þarf að huga að ýmsu þegar nýta á þá takmörkuðu auðlind sem fiskistofnar á Íslandsmiðum eru. Ritgerð þessi felst í því að kynna flestar áhættur og óvissuþætti sem til staðar eru í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi, taka nokkrar mismunandi af þeim fyrir og skoða nánar. Ýmsir þættir sem koma að rekstri tveggja íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, Brims og Síldarvinnslunnar eru settir undir smásjá með það að markmiði að koma auga á áhættuþætti í rekstrinum og þá hvort fyrirtækin séu að stunda einhverja virka áhættudreifingu eða verja sig fyrir óvissu á einn eða annan hátt. Afkoma þeirra og helstu tölur yfir 10 ára tímabil (2014-2024) verða svo bornar saman við afkomu nokkurra annarra félaga sem skráð eru á hlutabréfamarkað í Kauphöll Íslands og eitt sjávarútvegsfyrirtæki sem ekki er skráð á markað. Samanburðarfélögin sex eru: Festi, Icelandair, Reitir, Hagar, Ölgerðin og loks Hraðfrystihúsið Gunnvör en það er ekki er skráð í Kauphöll. Höfð var áhersla á að bera afkomu félagana tveggja við önnur félög þvert á atvinnugreinar og fá vísbendingar um hvort áhættu og óvissuþættir hafi beina áhrif á arðsemi. Niðurstöður eru að fjölmargir óvissuþættir og áhættur eru til staðar í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Tímabilið sem tekið var fyrir spannar mismunandi árferði í efnahagskerfinu og höfðu einstaka atburðir bein áhrif. Margfalt meiri sveiflur voru í arðsemi Icelandair yfir tímabilið sem í þessum samanburði ætti að gefa vísbendingu um að rekstur í flugfélaginu mun áhættusamari en í sjávarútvegsfyrirtækjunum. Hagnaður Brims og Síldarvinnslunnar var mestur af öllum fyrirtækjunum í samanburðinum en vöxtur mun óstöðugri samanborið við samanburðarfélögin.

Fields of Study & Subjects

Marine and fisheries research Fisheries and Aquaculture Studies Maritime Navigation and Safety

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis