Stefnumiðuð nýsköpun - staða stefnumiðaðrar nýsköpunar á Íslandi

Authors: Gísli Vilberg Stefánsson 1994-
Cited by: 0

Abstract

Stefnumiðuð nýsköpun (e. strategic innovation) hefur á alþjóðavísu byrjað að skipa stærri sess í skipulagsheildum, enda talin nauðsynleg til þess að viðhalda samkeppnishæfni. Oft myndast togstreita milli formlegs stefnumótunarferils og athafnafrelsis starfsmanna, en innleiðing stefnumiðaðrar nýsköpunar getur verið flókin í framkvæmd. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig íslenskum fyrirtækjum sem stunda stefnumiðaða nýsköpun gengur að innleiða stefnu, og hvaða vandamál koma helst upp við þá vinnu. Rannsóknarspurningarnar eru tvær, sem leitast var við að svara: (1) hverjar eru helstu áskoranir sem koma upp í stefnumiðaðri nýsköpun? og (2) hvernig hefur reynst best að leysa úr þeim áskorunum í íslenskum skipulagsheildum? Til þess að svara þeim var beitt eigindlegri aðferðafræði. Tekin voru tíu hálfopin viðtöl við aðila sem hafa komið að eða starfa innan stefnumiðaðrar nýsköpunar, samkvæmt fræðilegri skilgreiningu, innan þeirra skipulagsheilda. Gögnin voru kóðuð og þemagreind, sem leiddi af sér þrjú aðalþemu og fjögur undirþemu. Niðurstöður benda til þess að helstu áskoranir stefnumiðaðrar nýsköpunar á Íslandi séu þörf á sveigjanleika og skilningi á meðvitaðri áhættu, þolinmæði fyrir mistökum, skorti á sameiginlegum innviðum og flóknu fjármögnunarkerfi. Lausnir á þeim áskorunum eru að hlúa að menningu sem hvetur til þverfaglegrar samvinnu, gæta að sálfræðilegu öryggi, og byggja upp traust meðal starfsmanna. Árangursríkar skipulagsheildir beita skýrri stefnumótun og veita starfsmönnum umboð til athafna með virkri þátttöku stjórnenda. Rannsókn þessi gæti nýst stjórnvöldum og skipulagsheildum við að móta stefnur sem varða stefnumiðaða nýsköpun, með því að hvetja til einfaldara fjármögnunarkerfis, aðgengi að sameiginlegum innviðum, samhliða að efla menningu sem hlúir að nýsköpun. Lykilorð: Stefnumiðuð nýsköpun, nýsköpunarstefna, nýsköpun á Íslandi, skipulagsheildir.

Fields of Study & Subjects

Innovation and Knowledge Management Business Strategies and Innovation Organizational Management and Leadership

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis