„Maður hefur bara svo ogeðslega mikla tru a hugmyndinni“ Tækifæri og askoranir hringrasarfrumkvoðla a Islandi
Abstract
Rannsóknin fjallar um íslenska hringrásarfrumkvöðla og upplifun þeirra á stöðu innleiðingar hringrásarhagkerfis á Íslandi. Markmiðið er að greina tækifæri og áskoranir sem þessir frumkvöðlar standa frammi fyrir og upplifun þeirra á vistkerfi frumkvöðla. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri aðferðafræði og byggir á níu hálfopnum viðtölum við tíu frumkvöðla sem hafa komið hugmyndum sínum í framkvæmd innan hringrásarhagkerfisins. Viðtölin fóru fram bæði í persónu og í gegnum fjarfundarbúnað, voru hljóðrituð og afrituð orðrétt. Gögnin voru greind með eigindlegri innihaldsgreiningu þar sem leitað var að þemum og mynstrum sem tengdust rannsóknarspurningum um innleiðingu hringrásarhagkerfisins og upplifun frumkvöðla af vistkerfi frumkvöðla á Íslandi. Niðurstöður sýna að innleiðing hringrásarhagkerfisins er á byrjunarstigi enda kerfislega flókin. Skortur er á samhæfingu, raunverulegum hvötum og breytingum á hegðun, innviðum og regluverki, þrátt fyrir aukna vitund og stefnumótun. Vistkerfi frumkvöðla er bæði hvetjandi og hamlandi. Aðgengi að styrkjum, tengslaneti og faglegum stuðningi styður við velgengni, en flókið regluverk, ófyrirsjáanleiki og ósamræmi í stuðningi draga úr stöðugleika fyrirtækjanna. Innri hvatar, persónulegur drifkraftur, félagsleg tengsl og seigla reynast lykilþættir í áframhaldandi starfsemi. Frumkvöðlarnir leggja áherslu á mikilvægi endurhönnunar ferla, breytinga á neysluhegðun og langtímaverðmætasköpun fremur en einungis tæknilegu nýnæmi eða hröðum vexti. Rannsóknin hefur skýra hagnýta þýðingu fyrir stefnumótendur, stuðningsaðila og frumkvöðla. Niðurstöðurnar benda til þess að heildræn stefnumótun sem byggir á samhæfingu kerfa, stuðningi við rekstrarhæfi frumkvöðla, óformlegu tengslaneti og félagslegum stuðningi geti aukið líkur á varanlegri og sjálfbærri nýsköpun innan hringrásarhagkerfisins á Íslandi. Enn fremur undirstrikar rannsóknin mikilvægi þess að meta árangur frumkvöðla út frá margþættri verðmætasköpun og langtíma- og samfélagslegum áhrifum fremur en skammtíma fjárhagslegum ávinningi.
Fields of Study & Subjects
Radio
Podcasts
and Digital Media
Media and Digital Communication
ICT Impact and Policies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis