„Ekki gæluverkefni heldur nauðsyn“ – Mannlegar frásagnir, fagleg vinnubrögð og samfélagslegur ávinningur í Ljósablaðinu 2025

Authors: Rósa Margrét Tryggvadóttir 1993-
Cited by: 0

Abstract

Lokaverkefni þetta felst í ritstjórn og útgáfu Ljósablaðsins 2025 fyrir endurhæfingarmiðstöðina Ljósið, ásamt fræðilegri greinargerð. Markmið verkefnisins var að miðla upplýsingum um heilbrigðis- og endurhæfingarmál af fagmennsku með vinnubrögðum tímaritablaðamennsku í stafrænu formi. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um blaðamennsku innan almannaheillasamtaka (e. NGO journalism) og nýtir sjónræna framsetningu til að auka aðgengi og dýpt efnisins. Helstu niðurstöður sýna að hægt er að stunda faglega blaðamennsku og taka sér hlutverk erindreka breytinga (e. agent of change) innan félagasamtaka án þess að fórna ritstjórnarlegu sjálfstæði. Afurðin staðfestir mikilvægi þess að gefa persónulegum frásögnum rými og tíma í stafrænu umhverfi.

Fields of Study & Subjects

Journalism and Media Studies Media Studies and Communication Media and Communication Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis