„Fyrir einhvern svona gáfaðan ertu ótrúlega heimskur“ Birtingarmynd ADHD í ADHD: Bannað að... bókaflokknum
Abstract
Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða birtingarmynd athyglisbrests og ofvirkni í bókaflokki sem Gunnar Helgason sendi frá sér á árunum 2021 - 2023 og fjallar um persónuna Alexander Daníel Hermann Dawidsson. Bækurnar nefnast ADHD: Bannað að eyðileggja, ADHD: Bannað að ljúga og ADHD: Bannað að drepa og eru sögurnar myndlýstar af Rán Flygenring. Bókaflokkurinn er sagður frá sjónarhorni ungs drengs með athyglisbrest og ofvirkni og er áhugavert að fylgjast með hugsunarferli hans og upplifun í gegnum ýmsar aðstæður daglegs lífs. Skoðaðar voru fyrri rannsóknir á áhrif sýnileika fjölbreytileikans í barnabókum og þær metnar saman og tengdar við bækurnar. Í ritgerðinni er skoðað hvaða klassísku einkenni greininganna persónan sýnir og finnur mest fyrir. Þá er einnig varpað ljósi á gildi þess fyrir taugatýpíksk (e. neurotypical) börn sem og þau sem eru með ADHD sé fá að spegla sig í persónunni og reynslu hans. Að auki er gerð grein fyrir viðtali sem tekið var við Gunnar Helgason um bókaflokkinn og sömuleiðis rætt um umfjöllun ADHD samtakanna um röskunina með hliðsjón af skáldsögunum sem ritgerðarhöfundur kallaði eftir.
Fields of Study & Subjects
Themes in Literature Analysis
Comics and Graphic Narratives
Attention Deficit Hyperactivity Disorder
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis