Fjárþurfi Þjóðarsport: Staða rekstrar og vinsælda handknattleiks á Íslandi
Abstract
Viðfangsefni ritgerðarinnar er staða íslensks handknattleiks, með tilliti til rekstrar og vinsælda. Síðustu misseri hefur umræða um íslenskan handbolta verið neikvæð, þá sérstaklega varðandi rekstur Handknattleikssambands Íslands, og lítið til af gögnum og/eða rannsóknum tengdum málefninu. Vilji var því til þess að skoða stöðuna, og sett fram rannsóknarspurningin „Hver er staða íslensks handbolta varðandi fjárhag og vinsældir og hvers vegna er rekstrarstaða HSÍ svona slæm?“. Reynt var að svara því með því að skoða ársreikninga HSÍ og félagsliða hérlendis, ásamt að safna gögnum um áhorf og aðsókn á keppnisleiki hérlendis. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að fjárhagsstaða bæði sambandsins og félagsliðanna er afar slæm, en HSÍ er aðallega að gjalda fyrir árangur landsliða sinna. Þá hefur aðsókn minnkað allverulega og það líklegast bitnað á fjárhag félagsliðanna. Á meðan virðist áhorf vera á afar góðum stað, bæði á deildarkeppni hérlendis og sérstaklega á A-landslið karla. Þetta misræmi milli vinsælda og tekjustöðu er afar áhugavert og sérstakt áhyggjuefni. Vonandi er þessi ritgerð, sem er eftir bestu vitneskju höfundar sú fyrsta sinnar tegundar, leið fyrir HSÍ og félagsliðin til þess að fá góða mynd af núverandi stöðu og hvati til þess að leita að leiðum til þess að bæta hana.
Fields of Study & Subjects
Physical Education and Sports Studies
Sports
Gender
and Society
Sports Analytics and Performance
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis