Þróun hlutverks forsetaembættis Íslands: Krýnt með kosningum?

Authors: Baltasar Bærendtsen Hafstað 2002-
Cited by: 0

Abstract

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er helsta heimild um hlutverk og vald forsetaembættisins, en hún hefur breyst lítið sem ekkert hvað embættið varðar, þrátt fyrir að margir telji hana óskýra varðandi einhverja þætti embættisins. Þrátt fyrir takmörkuð afskipti löggjafans af forsetaembættinu og stjórnarskránni hvað embættið varðar, virðist vald þess og hlutverk þó hafa þróast á nokkuð athyglisverðan hátt. Sjö einstaklingar hafa gengt embættinu frá stofnun þess og hafa þeir beitt sér á mismunandi hátt og hver sett sitt mark á embættið, en reynt verður að gera grein fyrir því hvernig forsetar hafa beitt sér og mögulega breytt embættinu, hver fyrir sig.

Fields of Study & Subjects

Public Administration and Governance Public Administration and Political Analysis Judicial and Constitutional Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis