Þróun manndrápa á Íslandi 1952-2023: Kynbundin mynstur og manndráp í nánu sambandi

Authors: Bjarnar Ingi Pétursson
Cited by: 0

Abstract

Í langtímarannsóknum er þróun manndrápa talið vera áreiðanlegasti mælikvarði á þróun ofbeldis, þvert á tímabil, lönd og heimshluta. Rannsóknin beinir sjónum að þróun manndrápstíðni yfir 72. ára tímabil á Íslandi, landi sem einkennist af efnahagslegum jöfnuði og miklu jafnrétti meðal kynja í alþjóðlegum samanburði. Áhersla er lögð á að greina kynbundin mynstur meðal gerenda og þolenda manndrápa. Sömuleiðis er litið til þróunar meðal manndrápa í nánu sambandi og annarra tegunda manndrápa. Rannsóknin nær til allra manndrápsmála sem áttu sér stað á Íslandi frá 1952 til 2023 (n= 125 mál, 138 gerendur, 132 þolendur). Gögnin voru kóðuð samkvæmt leiðarvísi European Homicide Monitor og fengin frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra. Niðurstöður eru birtar með lýsandi tölfræði manndrápa á hverja 100.000 íbúa yfir tímabil rannsóknar og niðurstöður túlkaðar í ljósi kenninga og fyrri rannsókna. Niðurstöður rannsóknar sýna að þróun manndrápstíðni á Íslandi var ólík þeirri þróun sem að hluta var alþjóðleg, einkum meðal vestrænna ríkja. Kynbundin mynstur meðal gerenda og þolenda á Íslandi er að jafnaði nokkuð áþekkt niðurstöðum fyrri erlendra rannsókna. Ísland sker sig helst úr í því samhengi að konum fór fjölgandi sem gerendur manndrápa á seinni helmingi tímabils, þó er sjaldgæft að konur fremji manndráp á Íslandi. Tíðni manndrápa í nánu sambandi og fjöldi mála var að jafnaði hærri á fyrri helming tímabils og fór lækkandi þegar líða fór á tímabilið, þó með undantekningum. Meira jafnvægi var á milli manndrápa í nánu sambandi og annarra tegunda manndrápa á fyrri hluta tímabils, eftir u.þ.b. 1989 fór öðrum tegundum manndrápa að fjölga talsvert umfram manndráp í nánu sambandi.

Fields of Study & Subjects

Homicide Infanticide and Child Abuse Intimate Partner and Family Violence Crime Patterns and Interventions

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis