Innheimta dómsekta á Íslandi: Skýringar á slökum innheimtuárangri og samanburður við Norðurlönd

Authors: Ásta Lilja Ásgeirsdóttir 1975-
Cited by: 0

Abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er innheimta dómsekta á Íslandi. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið er ferlið rakið frá því að grunur vaknar um ólögmætt atferli og rannsókn fer fram, þar til ákært er í málinu, það dómtekið og sekt er innheimt, vararefsing er fullnustuð eða málið fellt niður. Dómsekt er fésekt sem dæmd er vegna brota á lögum, einna helst skattalögum, og er hún mikilvægur hluti af viðbragði ríkisins þegar lögbrot á sér stað. Ritgerðin byggir meðal annars á þeirri forsendu að misræmi geti skapast milli markmiða löggjafans um hörð viðurlög við skattalagabrotum og þeirra úrræða sem innheimtuaðilar hafa í reynd til að framfylgja stefnunni. Þetta misræmi getur leitt til þess að háar dómsektir innheimtast illa eða ekki og að dómar séu í mörgum tilfellum fullnustaðir með samfélagsþjónustu, sem er ekki í takti við áðurnefndan vilja löggjafans um hörð viðurlög. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvað skýrir lágt innheimtuhlutfall sekta hér á landi, hvaða innheimtuaðferðum er beitt og hvernig staðan er á Íslandi samanborið við önnur lönd. Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun. Stuðst verður við greiningu á innlendum og erlendum gögnum, þar á meðal skýrslum Ríkisendurskoðunar og viðbrögðum stjórnvalda við ábendingum hennar. Þá eru tekin viðtöl við sérfræðinga í stjórnsýslunni sem hafa sérþekkingu á efninu og samanburður gerður á innheimtuárangri og innheimtuaðferðum til að skoða hvernig Ísland stendur gagnvart Norðurlöndunum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um að ákveðin gjá sé á milli markmiða laga um refsingu vegna skattalagabrota og raunverulegrar fullnustu refsingar, en vilji hafi ekki verið til staðar á hinu pólitíska sviði til að gera þær lagalegu breytingar sem til þarf svo að hægt sé að ná markmiðum um innheimtu dómsekta.

Fields of Study & Subjects

Taxation and Legal Issues Criminal Law and Policy Legal processes and jurisprudence

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis