Tröllin í steinunum: Leirmótun, menningararfur og skapandi nám á yngsta stigi

Authors: Þorbjörg Kristinsdóttir 2001-
Cited by: 0

Abstract

Verkefnið Tröllin í steinunum fjallar um þróun kennsluverkefnis sem byggt er á safnakennslu fyrir yngsta stig grunnskólans. Kennsluverkefnið byggir á safnaheimsókn þar sem nemendur skoða verk Ásgríms Jónssonar sem unnin eru út frá þjóðsögum og tröllum. Tilgangurinn er að kanna hvernig safnakennsla og menningararfur geta orðið grunnur að skapandi og merkingarbæru listnámi barna. Verkefnið var þróað og prófað að hluta í kennslustofu þar sem nemendur skissuðu hugmyndir, mótuðu eigin tröll úr leir og máluðu verkin að lokum. Við prófun verkefnisins var stuðst við kennsluaðferðir sem tengjast reynslunámi, möguleikahugsun og fagmiðaðri myndlistarkennslu (Discipline-Based Art Education (DBAE)). Greinargerðin setur verkefnið í fræðilegt samhengi með hliðsjón af Menntastefnu 2030, aðalnámskrá grunnskóla, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og hugmyndum Deweys, Eisners, Craft og DBAE. Reynslan af prófun verkefnisins bendir til þess að vel útfærð safnakennsla og tenging við menningararf geti stutt við ímyndunarafl, þátttöku og skilning barna á listasögu. Verkefnið styður við menningarlegt læsi og einfalda, sjálfbæra kennsluhætti og er viðbót við kennsluverkefni sem tengja saman listasögu, sköpun og reynslunám á aðgengilegan hátt fyrir yngstu nemendurna.

Fields of Study & Subjects

Art Education and Development Artistic and Creative Research Creativity in Education and Neuroscience

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis