Homeless individuals with complex needs. Harm reduction in Iceland and Denmark

Authors: Fanney Ösp Guðjónsdóttir 2002-, Lydía Líf Örvar 2000-
Cited by: 0

Abstract

Ritgerðin er lokaverkefni til BA-gráðu í félagsráðgjöf og fjallar um áhrif skaðaminnkandi hugmyndafræði á heimilislausa einstaklinga með vímuefnavanda á Íslandi og í Danmörku. Í ritgerðinni er kannað hvernig skaðaminnkandi nálgun hefur áhrif á lífsgæði og þjónustu heimilislausra einstaklinga með vímuefnavanda. Ritgerðin byggir á greiningu innlendra og erlendra fræðilegra heimilda, opinberra skýrslna og stefnumótandi gagna. Fjallað er um skilgreiningar á hugtökunum heimilisleysi og vímuefnavanda og settar fram tölfræðilegar upplýsingar um heimilislausa einstaklinga í vímuefnaneyslu í þessum tveimur löndum. Þá er fjallað um mótun og eðli vímuefnavanda og sett fram yfirlit yfir stefnu Íslands, Danmerkur og Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði. Ritgerðin varpar ljósi á tengsl heimilisleysis og vímuefnavanda og greinir þau úrræði sem standa til boða fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir með miklar og flóknar þjónustuþarfir (HMFÞ). Einnig er gerð grein fyrir hlutverki félagsráðgjafa og þróun starfsins í tengslum við málaflokkinn. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að skaðaminnkandi nálgun geti haft jákvæð áhrif á lífsgæði og heilsu heimilislausra einstaklinga sem falla undir málaflokkinn HMFÞ. Þá undirstrika niðurstöðurnar mikilvægi þjónustu sem byggir á mannréttindum, virðingu fyrir einstaklingnum og einstaklingsmiðuðum þörfum.

Fields of Study & Subjects

Homelessness and Social Issues HIV Drug Use Sexual Risk Criminal Justice and Corrections Analysis

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis