Mótun barns frá æsku til samfélagslegrar velferðar : Mikilvægi félagslegs og menningarlegs auðmagns í lífi barna
Abstract
Í þessari ritgerðar er svarað, hver staða og tækifæri barna eru út frá rannsóknarspurningunni: Að hvaða leyti er efnahagslegt, félagslegt og menningarlegt auðmagn undirstaða framtíðartækifæra, samfélagslegrar velferðar og líðan barna? Í ritgerðinni er leitast við að greina mismunandi sjónarmið fræðimanna á bæði ófullnægjandi og góðum uppvaxtaraðstæðum barna og hvað styðji börn best til samfélagslegrar velferðar. Ritgerðin byggir á fræðilegum heimildum og félagsfræðilegri nálgun til þess að leita svara og ná dýpri skilningi á því sem börn þarfnast, hvernig samfélagið getur haft áhrif á mótun og velferð barna og hvert hlutverk félagslegs og menningarlegs auðmagns er. Leitað var að svörum í erlendum rannsóknum og sálfræðikenningum að tengslamyndun, fátækt, fjárhagslegri velferð, menntun, stuðningi yfirvalda og fleiru sem hefur áhrif á börn. Jafnframt var skoðað hver áhrifin eru á velferð barna þegar auðmagn skortir, þau alast upp án tilfinningalegs stöðugleika, missa af menntunartækifærum og öðlast ekki almenna þekkingu til framtíðarvelferðar. Í íslenskum skýrslum og rannsóknum á málefnum barna kemur fram að fátækt og skortur á efnislegum gæðum er til staðar. Eigindleg rannsókn sýnir að gott bakland frá fátækum foreldrum skipti ekki minna máli til velferðar barnanna. Leitað var í fjárhagslegum tölfræðilegum gögnum eftir upplýsingum á aðstæðum og skorti á efnislegum gæðum sem hafi áhrif á börn íslenskra heimila. Fæðingarorlof er hluti af fjárhagslegri velferð barna en mun lægri greiðslur eru til foreldra í fátækt en foreldra í velmegun. Ungabörnum er þarna mismunað út frá því hvort þau búa í fátækt eða velferð af yfirvöldum. Mikilvægt er fyrir yfirvöld og alla sem koma að uppeldi barna að vera vel upplýstir um hvað börn skorti og hvers þau þarfnist til góðrar framtíðarvelferðar.
Fields of Study & Subjects
Children's Rights and Participation
Child Welfare and Adoption
Youth Development and Social Support
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis