Child-staff ratio in early education - Comparing policy in Iceland and Norway
Abstract
Leikskólastarf á Norðurlöndum byggir á sterkum velferðargildum, fagmennsku og áherslu á jafnan aðgang barna að ECEC. Í fræðilegri umræðu um gæði leikskólastarfs er lögð áhersla á skipulag og aðstæður sem skapa forsendur fyrir vellíðan barna, faglegt starf starfsfólks og daglegt uppeldis- og menntunarstarf. Barngildi hefur samhliða því verið mikilvægur þáttur í stefnumótun og reglusetningu, þó með ólíkum áherslum milli ríkja. Markmið ritgerðarinnar er að greina hvernig stefnumótun um barngildi er mótuð og útfærð á Íslandi og í Noregi, með sérstakri áherslu á hvernig hugmyndir um öryggi og vellíðan barna birtast í ákvörðunum um fjölda barna á hvern starfsmann í leikskólum. Ritgerðin er byggð á greiningu á lögum, reglugerðum og stefnumótandi gögnum í báðum löndum, auk alþjóðlegra samanburðargagna um mönnun leikskóla. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að íslensk stefnumótun hefur þróast frá skýrum tölulegum viðmiðum um barngildi yfir í sveigjanlegra fyrirkomulag þar sem faglegt mat leikskólastjóra og sveitarfélaga gengur fyrir. Áhersla er lögð á heildstætt mat sem tekur mið af aldri barna, dvalartíma, húsnæði og samsetningu starfsmannahóps. Þessi nálgun veitir aukið svigrúm en felur á sama tíma í sér aukna ábyrgð þeirra sem starfa í leikskólum á að tryggja öryggi og velferð barna. Í Noregi hefur þróunin verið með öðrum hætti, þar sem lögfest hafa verið skýr lágmarksviðmið um mönnun sem kveða á um hámarksfjölda barna á hvern starfsmann eftir aldri barna. Viðmiðin eru sett fram sem réttindi barna og þeim er ætlað að tryggja lágmarks gæði og jafnræði óháð rekstrarformi leikskóla. Alþjóðleg samanburðargögn sýna að þrátt fyrir svipað hlutfall barna á hvern starfsmann í báðum löndum er hlutfall barna á hvern kennara almennt hærra í Noregi en á Íslandi. Í heild benda niðurstöður ritgerðarinnar til þess að leiðir Íslands og Noregs sýni fram á ólík sjónarmið hvað varðar ábyrgð, faglegt sjálfstæði og hlutverk ríkis og sveitarfélaga í mótun leikskólastarfs. Áherslur í íslenskri stefnumótun byggja á trausti til faglegs mats og sveigjanleika á meðan norskar áherslur leggja meiri áherslu á skýra reglusetningu og lögfest viðmið. Í báðum tilvikum eru ákvarðanir um barngildi órjúfanlega tengdar hugmyndum um gæði, öryggi, vellíðan barna og starfsumhverfi leikskóla.
Fields of Study & Subjects
Early Childhood Education and Development
Education Systems and Policies
Educational Practices and Policies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis