Einelti í frístund : handbók fyrir frístundaleiðbeinendur
Abstract
Meirihluti barna á aldrinum 6 til 9 verja stórum hluta dags á frístundaheimilum. Því eru frístundaheimili kjörinn vettvangur fyrir eineltisforvarnir sem sniðnar eru að þeim aldurshópi. Ótti við útskúfun og skortur á félagsfærni er talin ein af orsökum eineltis. Til að vinna bug á þessum þáttum þarf að greina hópinn og finna þau börn sem upplifa sig ekki sem hluta af hópnum og sníða starfið á frístundaheimilinu að þörfum þeirra. Félags- og tilfinningafærni er hæfileiki sem hægt er að kenna í skólum og frístundaheimilum en rannsóknir sýna að börn sem búa yfir félags- og tilfinningafærni glíma síður við hegðunarvanda og leggja sjaldnar í einelti. Það er álit ýmissa fagaðila að með aukinni samvinnu milli skóla og frístundar sé hægt að samhæfa aðgerðir gegn einelti innan skóla og utan. Skóli, frístund og aðrir aðilar sem vinna með börnum bera nú sameiginlega ábyrgð á að standa vörð um farsæld barna samkvæmt nýju farsældarlögunum.
Fields of Study & Subjects
Child and Adolescent Psychosocial and Emotional Development
Bullying
Victimization
and Aggression
Child Therapy and Development
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis