Samveruleiki barna og leikskólakennara. Gildi samskipti í námi og mótun sjálfsmyndar

Authors: Sóley Auður Mímisdóttir 1991-
Cited by: 0

Abstract

Ritgerðin fjallar um mikilvægi samskipta í leikskólastarfi og hvernig þau móta nám, þroska og sjálfsmynd barna. Markmið hennar er að varpa ljósi á hvernig leikskólakennarar geta meðvitað notað samskipti til að efla tjáningu, trú barna á eigin getu og tilfinningu þeirra fyrir eigin virði. Byggt er á fræðilegri greiningu sem sækir í kenningar Berit Bae um víð og þröng samskiptamynstur, hugmyndir Vygotsky um félagslegt nám og heimspekilega sýn Páls Skúlasonar á samveruleika og siðferðileg gildi. Niðurstöður benda til þess að samskipti sem einkennast af virðingu, hlustun og jafnvægi í valdastöðu styrki sjálfsmynd barna og stuðli að virkni þeirra í eigin námi. Þröng og stýrandi samskipti geta á hinn bóginn dregið úr frumkvæði, forvitni og trú barna á eigin getu. Meginniðurstaðan er að samskipti eru ekki aðeins tæki til kennslu heldur sjálfur grundvöllur náms og sjálfsmyndarmótunar barna. Ritgerðin undirstrikar faglega ábyrgð leikskólakennara og mikilvægi þess að þeir séu meðvitaðir um eigin samskiptamynstur og geri sér grein fyrir áhrifum þeirra á sjálfsmynd og velferð barna.

Fields of Study & Subjects

Early Childhood Education and Development Educational Environments and Student Outcomes Psychology of Development and Education

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis