Endurmat barna og lýðræði í leikskólastarfi: Raddir barna sem grundvöllur lýðræðis í leikskóla

Authors: Hekla Baldursdóttir 1999-
Cited by: 0

Abstract

Þessi ritgerð er lögð fram til B.Ed.-prófs í leikskólakennarafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er endurmat barna og hvernig það getur stutt við lýðræðislegt uppeldi á leikskóla. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á endurmatsaðferðir barna í leikskóla og hvernig slíkar aðferðir geta nýst til þess að auka lýðræðislega þátttöku leikskólabarna. Lýðræði í leikskóla er erfitt að skilgreina að því leitinu til að birtingarmynd þess er ólík hinu stofnanalega lýðræði sem flestir kannast við. Lýðræði í leikskóla snýst frekar um lýðræðislega umgjörð innan leikskólanna þar sem áherslan er lögð á á lýðræði sem lífsmáta. Gildi lýðræðis í leikskóla snýst um samræðu, jafnrétti, sjónarmið barna og þátttöku svo fleira sé nefnt en þau gögn sem aflað var fyrir ritgerðina lúta að endurmatsaðferð í leikskóla í Reykjavík. Leitast var við að svara því hvaða gildi slíkar endurmatsaðferðir hafa í sambandi við lýðræði á leikskóla og hvort að hægt sé að auka tækifæri barna til þátttöku í lýðræði með slíkum aðferðum.

Fields of Study & Subjects

Early Childhood Education and Development Children's Rights and Participation Child Development and Education

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis