Frá valdbeytingu til valdeflingar: Framtíðarsýn um félagsráðgjöf og mannúðlega löggæslu
Abstract
Í þessari ritgerð er fjallað um þverfaglegt samstarf lögreglu og félagsráðgjafa og metinn möguleikinn á að innleiða félagsráðgjafa innan lögreglunnar á Íslandi. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er eftirfarandi: Er innleiðing félagsráðgjafa í starfsemi lögreglu mikilvæg og tímabær breyting í átt að mannúðlegri og samfélagsmiðaðri nálgun við löggæslu á Íslandi? Ritgerðin er fræðileg umfjöllun sem byggir á innlendum og erlendum heimildum. Fjallað er um kenningar á borð við stimplunarkenninguna, áfallamiðaða nálgun og kerfis- og vistfræðilega nálgun, auk þess sem hlutverk lögreglu og félagsráðgjafa er skoðað í samhengi við helstu notendahópa lögreglu. Umfjöllun um alþjóðleg samstarfsverkefni, meðal annars SWaPOL í Evrópu og SWLE í Bandaríkjunum, bendir til þess að aukið samstarf lögreglu og félagsráðgjafa geti stuðlað að mannúðlegri þjónustu, dregið úr endurupplifun áfalla og aukið öryggi viðkvæmra hópa. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að slík innleiðing sé bæði mikilvæg og tímabær á Íslandi. Hún getur létt álagi af lögreglumönnum, bætt þjónustu og aukið traust almennings á löggæslukerfinu.
Fields of Study & Subjects
Policing Practices and Perceptions
Criminal Justice and Penology
Public Policy and Administration Research
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 February 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis