Áhrif fátæktar á þátttöku barna í íþrótta - og tómstundastarfi
Abstract
Ritgerð þessi fjallar um þau áhrif sem fátækt hefur á þátttöku barna í íþróttum – og tómstundastarfi í Reykjavík og hvernig félagsráðgjafar geta stutt við þau börn sem búa við slæm efnahagsleg kjör og tryggt þeim jöfn tækifæri til þátttöku. Stuðst er við tvær fræðilegar kenningar og eru það Vistfræðikenning Bronfenbrenners sem varpar ljósi á samspil milli einstaklings og umhverfis og Hæfninálgun Dréze og Sen sem leggur áherslu á tækifæri einstaklinga til þátttöku og virkni félagslega. Markmið ritgerðar var að sýna hvernig kerfisbundnar hindarnir geta takmarkað aðgang barna sem búa við fátækt að uppbyggilegu og skipulögðu íþrótta – og tómstundastarfi og hvaða verkfæri og leiðir félagsráðgjafar hafa til að draga úr neikvæðum áhrifum ójöfnuðar. Niðurstöður sýna fram á bæði bein og óbein áhrif fátæktar á þátttöku barna, beinu áhrifin koma fram í hindrunum fjárhagslega t.d. í æfingagjöldum og kaupum á búnaði en tekjulægri fjölskyldur eiga erfitt með standa straum af þeim kostnaði. Óbeinu áhrifin koma síðan þannig fram að það er takmarkað framboð í sumum hverfum í Reykjavík af aðstöðu fyrir íþrótta – og tómstundastarf, skortur á upplýsingum hvað varðar réttindi og styrki er til staðar ásamt því að foreldrar upplifa óöryggi. Frístundakort Reykjavíkurborgar hefur verið að bera árangur en dugir oft ekki fyrir efnalitlar fjölskyldur. Hlutverk félagsráðgjafa er margvíslegt í þessum efnum og sýna þeir börnum stuðning, auka samhæfingu milli kerfa, aðstoða foreldra og beita sér fyrir betri stefnumótun og þjónustu. Greiður aðgangur og þátttaka barna að íþrótta- og tómstundastarfi eflir heilsu þeirra og félagslega færni og er því mjög mikilvægur þáttur fyrir velferð þeirra. Til þess að auka jöfnuð þarf að draga úr hindrunum og styrkja samstarf milli þeirra kerfa sem hafa áhrif á og móta líf barna.
Fields of Study & Subjects
Youth Development and Social Support
Children's Rights and Participation
Social and Cultural Dynamics
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis