Samframleiðsla í kvikmyndagerð: reynsla íslenskra fagaðila í þverþjóðlegu samstarfi
Abstract
Þessi ritgerð fjallar um samframleiðslu í kvikmyndagerð og hvaða áhrif hún hefur á ákvarðanatöku framleiðenda og framkvæmd verkefna. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í hvernig samframleiðslu er háttað í kvikmyndagerð, með sérstakri áherslu á evrópskt samhengi og reynslu íslenskra fagaðila í þverþjóðlegu samstarfi. Gerð var rannsókn sem byggði á eigindlegri aðferð og tekin voru sjö hálfopin viðtöl við íslenska framleiðendur og aðra sérfræðinga sem hafa reynslu af samframleiðsluverkefnum. Rannsóknargögnin voru greind með þemagreiningu. Viðtölin voru kóðuð og síðan flokkuð í þemu. Í ritgerðinni er farið yfir hvernig fjármögnun er sett saman í samframleiðslu, hvernig samstarf milli landa er skipulagt og hvaða áhrif stofnanaleg skilyrði hafa á ákvarðanir framleiðenda. Niðurstöðurnar voru þær að samframleiðsla er ekki afmarkaður þáttur í framleiðsuferlinu, heldur umgjörð sem hefur áhrif á verkefni frá upphafi til enda. Ákvarðanir framleiðenda ráðast snemma af því hvaðan fjármögnun getur komið og hvaða samstarf opnar aðgang að stuðningsúrræðum. Jafnframt benda niðurstöðurnar til þess að samframleiðsla skapi virði sem felst í fleiru en fjármögnun, meðal annars í formi þekkingarmiðlunar, tengslanets og aukinna tækifæra í dreifingu og aðgang að mörkuðum. Þá kemur fram að aðkoma streymisveitna getur haft áhrif á hugverkaréttindi og langtímavirði eftir því hvernig samið er um hlutverk þeirra í samframleiðslu. Niðurstöðurnar sýna einnig að eignarhald og valdahlutföll í samframleiðslu mótast bæði af formlegum samningum og stöðu aðila þar sem fjármögnun, samningsstaða, reynsla og tengslanet geta skipt máli fyrir það hver hefur áhrif á lykilákvarðanir og hvernig réttindi nýtast til lengri tíma.
Fields of Study & Subjects
Cinema and Media Studies
Cultural Industries and Urban Development
Cinema History and Criticism
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis