Amelía og Óliver : Hvernig bók er þetta: Kennsluefni í anda samræðulesturs fyrir elstu börn leikskóla
Abstract
Verkefni þetta, Amelía og Óliver: Hvernig bók er þetta? Byggir á aðferðum samræðulestur en um er að ræða tvískipt verkefni. Annarsvegar er um fræðilega greinagerð og hins vegar kennsluleiðbeiningar. Fræðilega greinagerðin byggir á hugmyndafræði samræðulesturs (e.dialouge reading) ásamt því að fjalla um hugtakið læsi og mikilvægi þess í leikskólastarfi. Í greinagerðinni er lagður grunnur og rök fyrir námsefninu sem byggir á aðferðum samræðulesturs. Barnabókin sem kennsluleiðbeiningarnar miðast við ber titilinn Amelía og Óliver (2025, Kristín Björg Sigurvinsdóttir og Sigrún Alda Sigfúsdóttir). Í greinagerðinini er fjallað um undirstöðuþætti bernskulæsis og og mikilvægi lesturs fyrir börn. Kennsluaðferðin Samræðulestur er skilgreind. Barnabókinni um Amelíu og Óliver er lýst og í lok greinagerðar er kynnt námsefni sem samið var með bókina til hliðsjónar, námsefni var búið til í anda samræðulesturs aðferðarinnar. Rýnt er í lestrarstundir og komið með úrlausnir.
Fields of Study & Subjects
Reading and Literacy Development
Literacy and Educational Practices
Early Childhood Education and Development
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis