Vald, ímynd og hagsmunir: Pólitísk nýting heimsmeistaramóta FIFA : Rússland 2018 og Katar 2022
Abstract
Markmið þessarar ritgerðar er að greina hvernig pólitískir og efnahagslegir hagsmunir hafa haft áhrif á ákvarðanir FIFA um val á gestgjafaríkjum heimsmeistaramóta í knattspyrnu, og hvernig ríki hafa nýtt slíka viðburði í pólitískum tilgangi. Rannsóknin beinir sjónum að heimsmeistaramótunum í Rússlandi árið 2018 og Katar árið 2022, sem eru tekin fyrir sem samanburðartilvik í ólíku pólitísku og stofnanalegu samhengi. Ritgerðin byggir á fræðilegum ramma sem sameinar hugmyndir um mjúkt vald, íþróttaþvott, hnattræna stjórnun og stofnanavald, og styðst við eigindlega samanburðaraðferð. Greiningin sýnir að þrátt fyrir að valferli FIFA sé formlega sett fram sem tæknilegt og hlutlægt, fer það í reynd fram innan stofnanakerfis sem einkennist af takmörkuðu gagnsæi og veiku aðhaldi, þar sem pólitískt vægi og efnahagslegt bolmagn ríkja skipta miklu máli. Niðurstöður benda til þess að bæði Rússland og Katar hafi nýtt heimsmeistaramótin sem pólitískt verkfæri í ímyndarsköpun og mjúku valdi, þó með ólíkum markmiðum og árangri. Í heild sinni undirstrikar rannsóknin að stóríþróttaviðburðir geta haft raunveruleg pólitísk áhrif, en að þau séu háð breiðara pólitísku og stofnanalegu samhengi og séu sjaldnast varanleg.
Fields of Study & Subjects
Sport and Mega-Event Impacts
Physical Education and Sports Studies
International Relations and Foreign Policy
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis