Kostnaðar- og ábatagreining greiðslumiðlunar: Samanburður á greiðslukortum og reiðufé

Authors: Hilmir Hreiðarsson 2000-
Cited by: 0

Abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um kostnað og ábata greiðslumiðlunar á Íslandi með áherslu á smágreiðslur og greiðslukort í samanburði við reiðufé. Markmið ritgerðarinnar er að leggja fram heildstætt mat á hagkvæmni greiðslumiðlunar með því að byggja á fyrirliggjandi kostnaðargreiningum og bæta við ábatagreiningu, sem hefur hingað til verið lítið rannsökuð. Sérstök áhersla er lögð á að greina muninn á einkakostnaði, samfélagskostnaði og kostnaði sem fellur á neytendur og seljendur, og hvernig þessi kostnaðarflæði hafa áhrif á þjóðhagslega hagkvæmni greiðslukerfa. Ritgerðin byggir á opinberum gögnum og greiningum Seðlabanka Íslands, ásamt erlendum rannsóknum frá Norðurlöndum og alþjóðlegum stofnunum. Beitt er kostnaðar- og ábatagreiningu til að meta ávinning greiðslumiðlunar. Meðal annars í formi greiðslufrests, fríðinda, öryggis og tímasparnaðar. Þar sem fullkomin gögn um alla ábataþætti liggja ekki fyrir er stuðst við varfærnar og gagnsæjar forsendur í útreikningum. Helstu niðurstöður benda til þess að þegar ábati er tekinn með í útreikninga er heildarkostnaður greiðslumiðlunar á Íslandi töluvert lægri en niðurstöður Seðlabankans gefa til kynna. Ábati rafrænna greiðsluleiða geti þó verið ofmetinn ef tekið er tillit til þess að hluti kostnaðar fellur á neytendur. Ritgerðin dregur jafnframt fram að innlend A2A-greiðslulausn geti til framtíðar stuðlað að lægri kostnaði, auknum viðnámsþrótti og auknu sjálfstæði greiðslumiðlunar á Íslandi.

Fields of Study & Subjects

Banking stability regulation efficiency Digital Transformation in Financial Services Law Economics and Judicial Systems

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis