„Þau eru ekki að hugsa um mig sem manneskju, þau eru að hugsa um mig sem konu.“ Eigindleg rannsókn um upplifun karla og kvenna í tengslum við valið barnleysi.
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar er að skoða upplifun karla og kvenna sem hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að eignast ekki börn, með sérstakri áherslu á að bera saman reynslu kynjanna. Þrátt fyrir vaxandi fræðilega umræðu um valið barnleysi hafa flestar rannsóknir einkum fjallað um upplifun kvenna, en reynsla karla hefur fengið minni athygli. Rannsókn þessi byggist á sex eigindlegum viðtölum við þrjár konur og þrjá karla á aldursbilinu 22 – 49 ára sem hafa ákveðið að vera barnlausir af eigin vilja. Með eigindlegri nálgun var leitast við að öðlast dýpri skilning á félagslegum veruleika viðmælenda og þeim samfélagslega þrýstingi og væntingum sem tengjast ákvörðun þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kynjamunur sé á upplifun viðmælenda, þar sem konur upplifa oftar vantrú og þrýsting tengdan móðurhlutverkinu, á meðan karlar upplifa almennt minni efa og minni samfélagslegar kröfur í tengslum við barnleysi sitt. Karlkynsviðmælendurnir sýndu samt fram á meiri þekkingu á óréttlætri kynjaskiptingu þriðju vaktarinnar og vildu ekki að slíkar samfélagslegar kröfur myndu falla á maka þeirra. Síðan kom einnig í ljós að upplifun viðmælenda var að hluta til kynslóðabundin, þar sem yngri þátttakendur upplifðu meiri þrýsting til barnleysis en eldri þátttakendur, sem ekki var gert ráð fyrir í upphafi rannsóknarinnar. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi þess að skoða valið barnleysi í samhengi við bæði kyn og kynslóð og undirstrikar nauðsyn þess að greina samfélagslegar væntingar til foreldrahlutverks út frá breiðara félagslegu samhengi í íslensku samfélagi.
Fields of Study & Subjects
Family Dynamics and Relationships
LGBTQ Health
Identity
and Policy
Reproductive Health and Technologies
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 February 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis