Reflexive Thematic Analysis: How is Reflexive Thematic Analysis Conducted?

Authors: Natalía Sigurðardóttir 2001-
Cited by: 0

Abstract

Eigindlegar rannsóknir hafa það markmið að skilja hvernig upplýsingar birtast í félagslegu eða menningarlegu samhengi. Prófessorarnir Virginia Braun og Victoria Clarke hafa lagt sterkan grunn í eigindlegum rannsóknum. Þær þróuðu ígrundaða þemagreiningu þar sem ekki er gengið út frá því að niðurstöður séu hlutlaus speglun gagna, heldur að þær mótist af rannsóknarferlinu, sem byggir á gagnrýninni ígrundun, fræðilegri afstöðu og skapandi túlkun. Markmið ritgerðarinnar er að sýna hvernig skal nota ígrundaða þemagreiningu og því verður farið yfir ferlið sem fer í að greina tvö þemu út frá íslenskum gögnum í samræmi við leiðbeiningar Braun og Clarke. Tekin voru viðtöl við íslensk ungmenni á aldrinum 15 til 22 ára (n=10), þar sem meðal annars var spurt um upplifun þeirra og reynslu af því hvernig COVID-19 hafði áhrif á ungmenni, áhrif á geðheilsu og hvaða aðstoð var í boði á þeim tíma. Þemun sem mótuðust tengjast því hvernig ungmenni leita sér andlegs stuðnings og hvað ungmennum á Íslandi finnst vanta í samfélagið til þess að auka aðgengi að aðstoð. Út frá greiningu var hægt að túlka að ungmenni leiti sér andlegs stuðnings með því að samþætta formleg og óformleg úrræði, svo sem sálfræðihjálp, félagsmiðstöðvar sem byrjunarskref og bakland. Hægt var að túlka að ungmennin upplifðu vöntun á skólasálfræðingum, biðlistar langir og að heilbrigðisþjónustan gripi seint inn í andleg veikindi. Ígrunduð þemagreining er því góð aðferð þegar markmiðið er að halda bæði í dýpt frásagna einstaklinga og tengja við samfélagslegt samhengi. Ritgerðin getur nýst bæði sem fræðsla um hvernig eigi að framkvæma ígrundaða þemagreiningu sem og til að efla notkun hennar.

Fields of Study & Subjects

Qualitative Research Methods and Applications Qualitative Research Methods and Ethics Posthumanist Ethics and Activism

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis