Lifa, Læra, Þrífast: Stafrænt úrræði - Heildræn vellíðunarþjálfun

Authors: Björn Leví Björnsson 1994-
Cited by: 0

Abstract

Markmið þessa lokaverkefnis er að rökstyðja hönnun stafrænnar vellíðunar- og tómstundaúrræðis: Lifa, Læra, Þrífast (LLÞ). Það byggir á reglubundnum öræfingum í öndun, hugleiðslu, mildri hreyfingu, sjónsköpun og hljóðrænni slökun. LLÞ er sett fram á vefsvæði og veitir notendum aðgang að myndböndum sem notast við náttúruumhverfi og slakandi hljóðheima, með áherslu á að móta venjur með því að veita sveigjanleika, sjálfræði og notendavænt umhverfi. Í þessu lokaverkefni er LLÞ sett í fræðilegt samhengi við tómstundafræði, rannsóknir á hugar-líkams íhlutunum (e. mind-body interventions), stafrænum inngripum og heilsueflandi tómstundaiðkun. Fjallað er um hvernig slík nálgun getur stutt við streitustjórnun, aukið athyglisspönn, bætt tilfinningastjórnun og aukið seiglu, án þess að um sé að ræða klíníska meðferð. Þá er gerð grein fyrir uppbyggingu afurðarinnar, gæðaviðmiðum, notendamiðaðri þróun og viðskiptaáætlun sem fylgir verkefninu í fylgiskjölum. Að lokum er lögð fram framtíðarsýn LLÞ sem getur nýst í fjölbreyttu samhengi, meðal annars í skóla-, frístunda- og vinnuumhverfi, með möguleikum á frekari rannsóknum og áframhaldandi þróun.

Fields of Study & Subjects

Digital Mental Health Interventions Innovative Human-Technology Interaction Mindfulness and Compassion Interventions

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis