Skekkjur í RTK-drónamælingum
Abstract
Notkun dróna við landmælingar hefur aukist verulega á síðustu árum og eru slík gögn í dag mikilvægur grunnur fyrir hönnun og ákvarðanatöku. Þrátt fyrir miklar framfarir í búnaði og hugbúnaði, sérstaklega með tilkomu RTK, geta ýmsar skekkjur myndast í drónamælingum sem mikilvægt er að greina og skilja. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna nákvæmni RTK-drónamælinga við íslenskar aðstæður, meta áhrif notkunar kontrólpunkta (GCP) og bera saman niðurstöður úrvinnslu í tveimur algengum myndvinnsluforritum, Pix4Dmapper og Agisoft Metashape. Rannsóknin byggði á loftmyndun rannsóknarsvæðis í Garðabæ með tveimur drónum, DJI Matrice 300 RTK og DJI Mavic 3E. Mælingar voru framkvæmdar bæði með og án GCP og gögnin unnin með mismunandi úrvinnsluaðferðum. Nákvæmni var metin með samanburði við sjálfstæða tékkpunkta sem mældir voru með GNSS-mælitækjum í hnitakerfinu ISN93. Niðurstöður sýna að RTK-leiðrétting ein og sér getur skilað ágætri staðsetningarnákvæmni í plani, en hæðarskekkjur geta orðið verulegar ef ekki er rétt tekið tillit til landshæðarkerfis. Notkun GCP reyndist lykilatriði til að ná fram marktækt betri nákvæmni, sérstaklega í hæð. Jafnframt kom í ljós að niðurstöður geta verið talsvert háðar vali á hugbúnaði og stillingum í úrvinnslu, sem undirstrikar mikilvægi staðlaðra vinnubragða. Rannsóknin sýnir að með réttum aðferðum geta drónamælingar með RTK verið áreiðanlegt verkfæri í landmælingum, en jafnframt að mannleg mistök og rangar forsendur í úrvinnslu geta haft veruleg áhrif á lokaniðurstöður.
Fields of Study & Subjects
3D Surveying and Cultural Heritage
Satellite Image Processing and Photogrammetry
Geodetic Measurements and Engineering Structures
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis