People with disabilities and working life: Employers’ perspectives on the participation of people with disabilities in working life

Authors: Rut Þorsteinsdóttir 1991-
Cited by: 0

Abstract

Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði til ráðninga fatlaðs fólks og greina hvernig yfirlýstar stefnur um fjölbreytileika og samfélagslega ábyrgð endurspeglast í framkvæmd. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við stjórnendur og sérfræðinga í mannauðsmálum hjá sex fyrirtækjum sem tilnefnd voru til viðurkenningar fyrir upplýsingagjöf um sjálfbærni. Niðurstöðurnar sýna að fjölbreytileiki er orðinn fastur þáttur í mannauðs- og jafnréttisstefnum fyrirtækja en hugtakið er oft túlkað almennt og tengt fyrst og fremst kynjajafnrétti og jafnlaunavottun. Fötlun er vissulega nefnd sem hluti af fjölbreytileika, en í framkvæmd birtist hún sjaldnast sem sértækar aðgerðir eða aðlögun til að ráða fatlað fólk til starfa. Í gildum fyrirtækjanna er lögð áhersla á virðingu, traust og jafnrétti en þar skortir markvissa stefnumótun, fræðslu og greiningu á hindrunum sem fatlað fólk mætir á vinnustöðum. Viðhorf stjórnenda sýna einnig óljósan skilning á hugtakinu fötlun og í sumum tilvikum er ábyrgð á úrbótum færð yfir á fötluðu einstaklingana sjálfa. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að fyrirtæki líti ekki á fjölbreytileikastefnu sem táknrænar yfirlýsingar heldur tileinki sér markvissar aðgerðir sem feli í sér inngildingu. Skortur á upplýstri fræðslu um stöðu fatlaðs fólks og ómeðvitaðar útilokanir í ráðningum draga úr trúverðugleika stefna fyrirtækja. Framlag rannsóknarinnar liggur í því að varpað er ljósi á viðhorf stjórnenda til atvinnu þátttöku fatlaðs fólks og kastljósinu beint að misræminu á milli stefnumótunar og framkvæmdar. Niðurstöðurnar sýna að þörf er á markvissari stefnumótun, aukinni fræðslu og aðgerðum sem stuðla að raunverulegri inngildingu. Rannsóknin getur því nýst bæði í áframhaldandi fræðilegri umræðu og sem hagnýtur leiðarvísir fyrir stefnumótun, réttindabaráttu og þróun þjónustu við fatlað fólk á íslenskum vinnumarkaði.

Fields of Study & Subjects

Disability Education and Employment Disability Rights and Representation Inclusion and Disability in Education and Sport

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis