Kynjaðar kappræður: Innihaldsgreining á truflunum í leiðtogaumræðum fyrir alþingiskosningar 2024

Authors: Gréta Jónsdóttir 1996-
Cited by: 0

Abstract

Kappræður í sjónvarpi eru mikilvægir viðburðir í aðdraganda kosninga. Þær veita almenningi tækifæri til að kynnast framboði, stefnum og frambjóðendum og kost á samanburði á ólíkum frambjóðendum samtímis og í rauntíma. Kappræður eru vettvangur ágreinings og eru truflanir órjúfanlegur þáttur kappræðna. Í þessari ritgerð eru truflanir í ræðum frambjóðenda í kappræðum RÚV fyrir alþingiskosningarnar árið 2024 til skoðunar. Markmiðið er að fanga umfang truflana sem og innihald þeirra með hliðsjón af kynjatengslum. Leitast er eftir því að varpa ljósi á það hver sé truflaður, hver trufli, og hvernig truflanirnar eigi sér stað. Sérstaklega er gert grein fyrir því hvort það sé munur á truflunum eftir kyni. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir að stjórnendur hafi beint jafn mörgum spurningum til allra frambjóðenda og að sömu reglur gildi fyrir alla frambjóðendur, bæði konur og karla, þá fá karlar lengri tíma og meira svigrúm til þess að svara. Að sama skapi fá konur færri, styttri og takmarkaðri tækifæri í málflutningi heldur en karlar. Þegar litið er til truflana er ljóst að karlar bæði framkvæma fleiri truflanir og verða fyrir fleiri truflunum. Karlar eru þannig líklegri til þess að brjóta gegn reglum stjórnenda og notfæra sér truflanir á skipulagðan hátt til þess að auka framlög sín en einnig til þess að grafa undan andstæðingum sínum. Málflutningi karla er veitt meiri athygli af bæði stjórnendum og frambjóðendum ásamt því að þeir fá fleiri tækifæri til þess að styrkja málflutning sinn. Á þann hátt hafa karlar meiri stjórn á umræðuefnum, ræðutíma og truflunum bæði í ræðum sínum og ræðum andstæðinga sinna.

Fields of Study & Subjects

Media Gender and Advertising Gender Politics and Representation Media Studies and Communication

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis