The Impact of COVID-19 on Study Progression and Graduation Probabilities among University of Iceland Students
Abstract
COVID-19 faraldurinn hafði víðtæk áhrif á samfélög heimsins og leiddi til skyndilegra breytinga á starfsemi menntastofnana. Skólar og háskólar færðu kennslu að stórum hluta yfir í fjarnám og innleiddu ýmsar sóttvarnaraðgerðir, sem breyttu námsaðstæðum og námsupplifun nemenda verulega. Alþjóðlegar rannsóknir benda til þess að þessar breytingar hafi haft áhrif á námsframvindu, þátttöku og líðan nemenda, auk þess að skapa nýjar áskoranir fyrir gæði kennslu. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort og hvernig COVID-19 faraldurinn tengdist námsframvindu og útskriftarlíkum nemenda við Háskóla Íslands. Rannsóknin byggir á megindlegri greiningu skráningargang frá Háskóla Íslands á tímabilinu 2017–2023. Bornir eru saman tveir árgangar nýnema: árgangur 2017, sem hóf nám fyrir faraldurinn, og árgangur 2020, sem hóf nám við upphaf faraldursins. Greiningin nær til nemenda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og Félagsvísindasviði. Tvær meginútkomur eru til skoðunar: Annars vegar hvort nemendur ljúki við sama nám og þeir hófu og hins vegar hvort nemendur ljúki námi eða séu langt komnir í námi innan rannsóknartímabilsins. Tengsl bakgrunns- og námsferilsþátta við þessar útkomur voru metin með logístískri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður sýna að bakgrunns- og námsferilsþættir tengdust námsframvindu og útskriftarlíkum marktækt, þar á meðal framhaldsskóli, fyrsta deild í námi, kyn (á Félagsvísindasviði), hvort um fyrsta nám við Háskóla Íslands væri að ræða og ár frá stúdentsprófi. Árgangur (2017 samanborið við 2020) reyndist hins vegar ekki marktækur forspárþáttur í líkönunum.
Fields of Study & Subjects
Education during COVID-19 pandemic
Higher Education Research Studies
Educational Outcomes and Influences
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis