Hvaða hug bera ungmenni til lesturs?
Abstract
Eftir hverja alþjóðlega könnun heyrist í fólki tala um hvað ungmenni kunna ekki að lesa og að þau séu latasta kynslóðin hingað til. Það er satt að íslenskir nemendur falla undir meðaltali í hverri könnun á eftir annari hvað lesskilning og lestrargetu varðar, en af hverju ætli það sé? Er bilið á milli lesskilnings íslenskra nemenda í samanburði við nágrannaþjóðir svona mikið? Eru ungmenni búin að gleyma því hvernig á að lesa? Nei, en markmið þessarar rannsóknar er að komast að því hver hugur ungmenna til lesturs er og gera það með því að framkvæmi eigindlega rannsókn á átta ungmennum á aldrinum 15 – 18. Rannsóknarspurning er „Hver er hugur ungmenna til lesturs?“ og voru ungmennin fengin og viðtöl og þau þemagreind og kóðuð til að komast að svari. Niðurstöður sýna að ungmenni beri almennt jákvæðan hug gagnvart lestri sem hugtaks og fyrirbæris en að lestrarvenjur þeirra ráðist frekar af aðstæðum, tíma, lestrarörðugleikum og innri hvatningu frekar en skort á áhuga eða bókaúrvali.
Fields of Study & Subjects
Literacy and Educational Practices
Reading and Literacy Development
Educational Methods and Media Use
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis