„Það er eins og lífið haldi áfram hjá öllum öðrum og ég sé bara föst heima“ - Upplifun ungra mæðra eftir barnsburð: Félagsleg einangrun, fordómar og bjargráð
Abstract
Viðfangsefni þessarar rannsóknar var að kanna hvernig félagsleg tengsl ungra mæðra breytast eftir barnsburð og hvernig þær upplifa þessar breytingar í líðan, sjálfsmynd og foreldrahlutverki. Rannsóknin beindist að konum sem urðu mæður á aldrinum 17–23 ára og eru nú 18–25 ára. Viðfangsefnið er mikilvægt þar sem að ungar mæður eru minnihlutahópur meðal jafnaldra og falla utan ríkjandi væntinga um tímasetningu barneigna, á sama tíma og umræða um félagslega einangrun og stöðu þeirra hefur aukist í samfélaginu. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðafræði. Tekin voru hálfopin viðtöl við sex þátt-takendur með ólíkan bakgrunn, sem áttu eitt til tvö börn. Viðtölin voru hljóðrituð, afrituð og greind með þemagreiningu Braun og Clarke. Kenningarlegur rammi rannsóknarinnar styðst við þroskakenningu Eriksons, kenningu Arnetts um komandi fullorðinsár, vistkerfa¬kenningu Bronfenbrenners og tengslamyndunarkenningar Bowlby og Ainsworth. Þar sem rannsóknin beinist að jaðarhópi, ungum mæðrum, þá var rýnt í samtvinnun mismununar eftir Crenshaw. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ungu mæðurnar upplifa félagslega stöðu sína og tengsl hafa breyst verulega eftir barnsburð. Margar lýstu því að vinatengsl veiktust, samskipti minnkuðu, færri boð bárust og þá kviknuðu tilfinningar eins og að passa ekki lengur inn í samfélag jafnaldra þeirra, sem ýtti undir sorg og einmanaleika. Stuðningur frá fjölskyldu og maka reyndist lykilþáttur í að draga úr einangrun og auka öryggi og vellíðan, á meðan skortur á stuðningi jók álag og einmanaleika. Aldursbundnir fordómar og vanmat frá jafnöldum og fagfólki kom fram í gögnum sem ýtti undir þörf viðmælenda að sanna sig sem „góðar mæður“ og standast félagslegar væntingar. Mæðurnar lýstu þörf á úrræðum og þjónustu sem væri markviss fyrir unga foreldra. Niðurstöður varpa ljósi á þörf fyrir markvissari eftirfylgni fyrstu tvö árin eftir barnsburð og úrræði sem taka mið af aldri, námi og efnahag ungra foreldra og á viðhorfsbreytingum í samfélaginu til að efla félagslega virkni og jákvæða sjálfsmynd ungra mæðra.
Fields of Study & Subjects
Family Dynamics and Relationships
Attachment and Relationship Dynamics
Work-Family Balance Challenges
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis