Ferlagreining á AutoStore kerfi: Rannsókn á vöruhúsi Parlogis ehf. á Hólmsheiði í þróunarstigi

Authors: Hilmir Jónsson 2000-
Cited by: 0

Abstract

Parlogis ehf. sérhæfir sig í vörudreifingu í heilbrigðisgeiranum og rekur tvö vöruhús í Krókhálsi og Skútuvogi. Núverandi staða er sú að bæði vöruhús þeirra hafa takmarkað geymslupláss til að mæta vaxandi eftirspurn, því var ákveðið að sameina þau í nýtt vöruhús á Hólmsheiði. Markmiðið var að framkvæma ferlagreiningu á fyrirfram ákveðnu AutoStore kerfi og greina hvernig hægt er að nýta kerfið samhliða öðrum tínslusvæðum. Farið var yfir helsta tæknibúnað, mismunandi útfærslur á tínslu, sjálfvirknivæðingu við sameiginlegt afhendingarsvæði, hannað flæði vara til og frá kerfinu og sett fram heilstæða lausnartillögu. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem stuðst var við fræðilega samantekt, viðtöl við lykilaðila, gagnasöfnun og greiningu raungagna úr starfsemi fyrirtækisins. Niðurstöður sýna fram á fjölbreyttan búnað sem styður við AutoStore kerfið og bætir heildarskilvirkni. Færibönd tengja tínslusvæðin og stytta flutningsvegalengd að sameiginlegu sjálfvirku flokkunarkerfi. Samanburður á tínslu staðfestir að hálf- og sjálfvirk tínsla AutoStore skilar mun meiri afköstum og sparnaði en núverandi tínsla Parlogis ehf. Lausnartillaga að uppsetningu tekur mið af kröfum um aðskilnað vöruflokka, framtíðarþarfa og sameinar ólík tínslusvæði. Lausnin mun styðja við ákvörðunartöku Parlogis ehf. hvað varðar hönnun, uppsetningu og innleiðingu AutoStore í nýja vöruhúsi fyrirtækisins.

Fields of Study & Subjects

Advanced Manufacturing and Logistics Optimization Industrial Automation and Control Systems Logistics and Transportation Systems

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
IS
Document type
Thesis