Development and testing of an innovative system for measurement of ultrasound modulation of electrical current in volume conductor

Authors: Davíð Arnljótur Karlsson 1992-
Cited by: 0

Abstract

Ómskoðun á straumlindarmyndgreiningu (USCSDI) er tækni með minniháttar inngripi sem lofar góðu við eftirlit með raförvun vöðva. Það getur verið krefjandi að mæla merki frá acousto-electrical interaction (AEI). Þetta merki sem stafar af víxlverkun milli úthljóðs og rafstraums í vefjum er mælt í microvoltum eða lægra, og því er mikilvægt að lágmarka truflanir vegna umhverfis- og rafsegulbylgna. Markmið þessarar ritgerðar var að hanna, smíða og bæta mælingauppsetningu og nákvæmni, sem og auka endurtekningarhæfni tilraunarinnar. Uppsetning tilraunarinnar var verulega bætt. Ílát mælingarinnar var bætt til að auka nákvæmni. Stillanlegu staðsetningarkerfi var bætt við ásamt nýrri vatnsheldri hlíf sem verndaði formagnarann frá umhverfis- og rafsegulbylgjum. Rafrásirnar voru færðar af brauðbretti yfir á prentað rafrásarborð (PCB), en þessi breyting dró úr vírum sem áður virkuðu sem loftnet og bættu við truflunum. Til að mæla AEI merkið voru notaðir púlsmóttakari, úhljóðsgjafi, spennumagnari og sveiflusjá. Niðurstöðurnar sýndu fram á trúverðuga breytingu á AEI spennu. Sumar greiningar sýndu samræmi við fræðileg gildi, einkum hvað varðar tímalaga (e. temporal) þáttinn. Aðrar mælingar, líkt og sveifluvíddin, einkenndust af verulegu suði. Greining á suði (e. noise analysis) staðfesti að kerfið hefur enn umtalsverðar truflanir. Niðurstöður benda til þess (the results indicate that) að endurbætur á rafrásinni séu nauðsynlegar til að tryggja áreiðanlegar og ótvíræðar mælingar. Í þessari ritgerð er byggt verulega á fyrri rannsóknum á USCDI með því að kynna endurbættan mælinema og rafeindabúnað, sem leggur grunn að áreiðanlegri og endurtakanlegri aðferð.

Fields of Study & Subjects

Ultrasonics and Acoustic Wave Propagation Advanced Electrical Measurement Techniques Electrical and Bioimpedance Tomography

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 January 2026
Language
EN
Document type
Thesis