Synthesis of Norbornene-Functionalised Macromonomers for Bottlebrush Polymers via ROMP: Characterisation and ROMP behaviour of polystyrene- and methoxy poly(ethylene glycol)-based macromonomers
Abstract
Fjölliður eru órjúfanlegur hluti nútímasamfélags og eru notaðar í fjölbreyttum tilgangi, allt frá umbúðum til háþróaðra efna. Þótt margar algengar fjölliður samanstanda af einföldum línulegum keðjum, bjóða flóknari byggingar upp á möguleika til að stýra eðli þeirra og þannig er hægt að öðlast betri skilning á tengslum byggingar og eiginleika. Í þessu verkefni voru pólýstýren (PS) og metoxý pólý(etýlen glýkól) (mPEG) stóreinliður með norbornene enda framleiddar og notaðar til að mynda burstafjölliður. Til þess var notuð hringopnunar víxlhvarfs fjölliðun (ROMP) með svokallaðri grafting-through aðferð. Pólýstýren stóreinliðurnar voru framleiddar með ARGET-ATRP fjölliðun í örbylgjuofni, en mPEG var virkjað með estermyndun. Áhrif hvarfskilyrða á afköst og útkomu ROMP voru rannsökuð, þar á meðal meðhöndlun á hvatanum, viðvera andrúmslofts og styrkur hvarflausnarinnar. Fjölliðurnar voru greindar með NMR litrófsgreiningu, gelflæðisskiljun (GPC), dreifingarháðri NMR litrófsgreiningu (DOSY) og mismunavarmamælingu (DSC). Myndun burstafjölliða var staðfest með auknum mólmassa, lægri dreifistuðlum og hærra glerhitastigi (Tg) samanborið við línulegt pólýstýren. Niðurstöðurnar sýna að ROMP er raunhæf aðferð til framleiðslu á burstafjölliðum við hefbundnar aðstæður á rannsóknarstofu.
Fields of Study & Subjects
Advanced Polymer Synthesis and Characterization
Polymer Surface Interaction Studies
biodegradable polymer synthesis and properties
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- IS
- Document type
- Thesis