Moisture in buildings and association with health outcomes: A systematic review
Abstract
Bakgrunnur: Rakaskemmdir í byggingum eru þekktur áhættuþáttur fyrir heilsu, einkum öndunarfæraeinkenni og öndunarfærasjúkdóma, og geta tengst truflun í ónæmiskerfi. Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa byggt á rakatengdum vísbendingum, svo sem sýnilegri myglu eða raka, myglulykt eða öðrum merkjum um raka, og slíkar vísbendingar hafa ítrekað sýnt stöðug tengsl við heilsufarslegar útkomur, oft sterkari en sértækar mælingar á einstökum líffræðilegum eða efnafræðilegum þáttum. Þrátt fyrir að slíkar mælingar séu mikilvægar hafa þær almennt ekki sýnt jafn sterk heilsufarslega marktæk tengsl og rakavísbendingar. Algengar rakavísbendingar byggja oft á sjálfsmati íbúa sem hefur takmarkanir eins og skekkju í skráningu og mati og takmarkaða getu til að greina faldar rakaskemmdir. Í bæði rannsóknum og framkvæmd hefur mat á útsetningu því oft byggt annaðhvort á sjálfsmati eða einangruðum líffræðilegum mælingum, þrátt fyrir þekkta annmarka beggja nálgana við að endurspegla heilsufarslega mikilvægar aðstæður tengdar rakaskemmdum. Faglegt mat og hlutlægar rakamælingar gætu því nýst sem viðbót með því að veita samþættara yfirlit yfir ástand bygginga og þannig styrkja mat á heilsufarslegri áhættu. Markmið: Markmið þessarar kerfisbundnu yfirlitsrannsóknar var að meta rannsóknir sem notuðu faglega metnar eða mældar vísbendingar um raka í íbúðarhúsnæði, og að meta hvort slíkar vísbendingar séu stöðugt tengdar skaðlegum heilsufarslegum afleiðingum og gætu nýst sem fyrsta stigs áhættumat í lýðheilsulegu tillit, fyrir áhrif á heilsu notenda byggingar. Aðferðir: Kerfisbundin heimildaleit var framkvæmd samkvæmt PRISMA leiðbeiningum í PubMed. Rannsóknir sem voru samþykktar inn í kerfisbundna yfirlitið þurftu að uppfylla skilyrði um að raki í íbúðarhúsnæði væri metinn með mælingum eða stöðluðum, faglegum byggingarskoðunum og heilsufarslegar útkomur jafnframt metnar. Upplýsingar um rannsóknarsnið, þátttakendur, rakavísbendingar, matsaðferðir og heilsufarslegar niðurstöður voru dregnar saman. Vegna verulegs breytileika í skilgreiningu útsetningar og rannsóknarsniðum voru niðurstöður teknar saman með lýsandi greiningu. Niðurstöður: Alls uppfylltu níu rannsóknir inntökuskilyrði, þar á meðal þversniðs-, tilfella-viðmiðunar- og ferilrannsóknir, auk tveggja rannsókna með óhefðbundnara sniði. Þvert á rannsóknir reyndust faglega metnar eða mældar rakavísbendingar, svo sem mat á rakaskemmdum,sýnilegri myglu og mældum raka, almennt tengdar aukinni tíðni öndunarfæraeinkenna, astma og öndunarfærasýkinga. Í sumum rannsóknum komu fram skýr tengsl við lífeðlisfræðilegar eða bólgutengdar mælingar og vísbendingar um skammtasvörun. Ályktun: Fyrirliggjandi gögn benda til þess að faglegt mat eða hlutlægar mælingar sem staðfesta raka í íbúðarhúsnæði tengist skaðlegum heilsufarslegum áhrifum, einkum á öndunarfæri. Þótt gagnagrunnurinn sé takmarkaður og aðferðir ólíkar, undirstrika niðurstöðurnar mikilvægi þess að þegar útsetning er metin sé hún metin með skipulögðu faglegu mati og mælingum á raka í rakaskemmdum byggingum, fremur en að treysta eingöngu á sjálfsmat eða afmarkaðar líffræðilegar mælingar. Framtíðarrannsóknir ættu því að leggja áherslu á frekari samræmingu matsaðferða og þróun úttektaraðferða sem henta ólíkum byggingargerðum og loftslagsskilyrðum.
Fields of Study & Subjects
Indoor Air Quality and Microbial Exposure
Hygrothermal properties of building materials
Building Energy and Comfort Optimization
Publication details
- Journal / source
- Skemman
- Publication date
- 1 January 2026
- Language
- EN