Landslag í mótun: Örnefni og ferli nafngifta í Surtsey

Read full text
Authors: Birna Lárusdóttir
Cited by: 0

Abstract

Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á örnefni sem hreyfanlegt og síbreytilegt afl og að draga upp mynd af því hvernig þessi hreyfanleiki hefur áhrif á landslag og sýn okkar á það. Nafngiftaferlið er í forgrunni, þ.e. að skoða hvernig örnefni og söfn örnefna verða til í tengslum við ýmsa aðra þætti. Til að draga fram inntak örnefnahugtaksins og hvernig það hefur þróast í fræðilegu ljósi eru sögu örnefnarannsókna á Íslandi gerð skil. Grafist er fyrir um viðhorf til örnefna, nafngiftaferla og örnefnasöfnunar og þar með könnuð tilurð gagna um örnefni eins og við þekkjum þau. Þá eru þekkt nafngiftaferli úr nútímanum notuð til að auka skilning á því hvernig örnefni verða til, hvernig þau endurspegla og hafa áhrif á heimsmynd okkar og varpa ljósi á menningarlegt vald yfir landfræðilegu rými og stöðum. Aðalrannsóknarefnið er örnefni í Surtsey, en hún varð til í eldsumbrotum haustið 1963. Þar gefst fágætt tækifæri til að rannsaka örnefnamyndun í nýju landi frá upphafi, en byggt er á ýmiss konar ritheimildum, vettvangskönnun og viðtölum. Aðferðafræðilegur grunnur verkefnisins er þverfræðilegur og stuðst við nálganir úr menningarlandfræði, félagslegri örnefnafræði og heimspeki. Þannig er horft á félagslegt umhverfi örnefna og m.a. hvernig þau eru ekki alltaf hlutlausir merkimiðar heldur gildishlaðin og jafnvel hápólitísk

Fields of Study & Subjects

Linguistics and Language Studies Plant Names and Ethnobotany Categorization perception and language

Publication details

Journal / source
Opin vísindi (Opin vísindi)
Publication date
9 March 2026
Language
IS
Document type
Thesis